Yfirgengilegustu „orlofssugur“ Sjálfstæðisflokksins – mun Davíð biðjast afsökunar?

Í heilan mánuð hefur verið beðið eftir því að Davíð Oddsson og Morgunblaðið biðji Dag B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóra, afsökunar á þeim ásökunum og ávirðingum sem Davíð hefur staðið fyrir þar sem Dagur hefur verið ásakaður um óeðlilega töku orlofsfjár við starfslok þar sem meiðyrði hafa ekki verið spöruð, eins og t.d. í leiðara Morgunblaðsins þann 19. ágúst sl. þar sem var spurt: Er sjálftakan ásættanleg að mati Samfylkingar? Í öðrum leiðara þann 22. ágúst notaði Davíð orðin „yfirgengilega orlofssugan“ um Dag B. Eggertsson.

Morgunblaðið tíðkaði hin breiðu spjótin í umfjöllun um þetta mál því laugardaginn 17. ágúst voru fjórir dálkar á forsíðu blaðsins lagðir undir risafyrirsögnina ORLOFSFÉ DAGS EINSDÆMI.

En var uppgjör borgarinnar á ónotuðum orlofsdögum Dags einsdæmi eins og Morgunblaðið hélt blákalt fram? Miðað við sleitulausar árásir Morgunblaðsins í ágústmánuði hefði mátt halda það. En veruleikinn er annar. Þann 31. ágúst birti Vísir vandaða samantekt á staðreyndum málsins sem unnin var upp úr bókhaldi borgarinnar. Þá kom á daginn að veruleikinn er aldeilis annar en að Dagur hafi misnotað aðstöðu sína við umrætt uppgjör. Sá sem sem fær að birtum staðreyndum málsins höggið beint í andlitið er enginn annar en Davíð Oddsson, fyrrum borgarstjóri og sá sem ber ábyrgð á rógskrifum og ærumeiðingum Morgunblaðsins vegna þessa máls, því sjálfur fékk hann uppgerða fleiri orlofsdaga þegar hann lét af embætti borgarstjóra en Dagur fékk núna. Davíð fékk uppgerða 93 orlofsdaga árið 1991 en Dagur fékk 69 daga uppgerða þegar hann lét af embætti borgarstjóra á þessu ári.

En fleira merkilegt kom fram í frétt Vísis sem byggð var á svari Reykjavíkurborgar við fyrirspurn fjölmiðilsins. Svarið er ítarlegt og getur um nákvæma starfstíma hvers borgarstjóra og hve marga orlofsdaga hver þeirra fékk uppgerða við starfslok í embætti borgarstjóra:

Í svari borgarinnar kemur m.a. fram að sá sem fékk langflesta orlofsdaga uppgerða miðað við starfstíma var sá borgarstjóri Sjálfstæðisflokksins sem tók við af Davíð Oddssyni árið 1991. Það var Markús Örn Antonsson sem gegndi stöðu borgarstjóra í 2,7 ár en fékk við starfslok uppgerða 90 orlofsdaga – eða 33 orlofsdaga á ári að meðaltali! Sá borgarstjóri sem fékk næstflesta daga uppgerða að meðaltali fyrir hvert starfsár var Hanna Birna Kristjánsdóttir frá Sjálfstæðisflokki. Hún gegndi stöðu borgarstjóra í 1,8 ár en fékk 41 orlofsdag uppgerðan við starfslok – eða 23 orlofsdaga að meðaltali á ári!

Sjálfur fékk Davíð Oddsson uppgerða 93 orlofsdaga þegar hann lét af störfum borgarstjóra árið 1991 eftir 9,2 ár í stöðu borgarstjóra – eða 10 orlofsdaga á ári að meðaltali. Til samanburðar fékk Dagur B. Eggertsson uppgerða 69 orlofsdaga þegar hann lét af starfi borgarstjóra fyrr á þessu ári eftir 9,5 ár í stöðu borgarstjóra – eða 7,3 orlofsdaga á ári að meðaltali.

Í ljósi þessara staðreynda hefði Davíð Oddsson átt að undirbúa árásir Morgunblaðsins betur þegar hann taldi að loksins hefðu þeir fundið höggstað á Degi B. Eggertssyni sem hefur átt sinn stóra þátt í að halda Sjálfstæðisflokknum frá völdum í Reykjavík um árabil. Hátt var reitt til höggs en höggið kom beint í andlit Sjálfstæðisflokksins og Davíðs sjálfs.

Meðal annars sem kom fram í svari borgarinnar til Vísis er að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fékk uppgerða 143 orlofsdaga þegar hún lét af embætti – eða 15 orlofsdaga á ári að meðaltali, Steinunn Valdís Óskarsdóttir fékk uppgerða 14 daga að meðaltali á ári og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson fékk uppgerða 16 orlofsdaga á ári að meðaltali þegar hann lét af starfi borgarstjóra. Umrætt fyrirkomulag við greiðslu ótekins orlofs var tekið upp þegar Davíð Oddsson var borgarstjóri.

Ef einhverjir fyrrverandi borgarstjórar verðskulda uppnefnið „orlofssugur“ er þá helst að finna í Sjálfstæðisflokknum.

Davíð og Moggamenn hafa ekki enn þá séð ástæðu til að biðjast afsökunar á ærumeiðingum sínum. Enda djúpt á sómakenndinni þar á bæ.

- Ólafur Arnarson