Voru sa í blekkingarleik þegar lífskjarasamningarnir voru undirritaðir?

Guðrún Hafsteinsdóttir varaformaður stjórnar LIVE, atvinnurekandi og formaður SI telur okkur í verkalýðshreyfingunni vera með frekleg afskipti af stjórn sjóðsins og sakar mig persónulega um skuggastjórnun og hótanir.

Þessum alvarlegu ásökunum verður varla svarað öðruvísi en að nú sé tími til kominn að verkalýðshreyfingin beiti sér fyrir því að atvinnurekendur fari úr stjórnum lífeyrissjóða.

Það hefur lengi verið rökstuddur grunur um skuggastjórnun af hálfu fyrrum stjórnarmanna úr röðum SA og því broslegt að slíkar ásakanir skuli koma úr röðum þeirra sem sjóðirnir hafa raunverulega þjónað.

Þessi hörðu viðbrögð koma ekki á óvart í ljósi þess að krafa okkar í verkalýðshreyfingunni er að sjóðirnir starfi með siðferðislegri sjónarmið að leiðarljósi og taki hag almennings (allra sjóðfélaga) fram yfir taumlausa græðgi og þjónkun við fjármálakerfið.

Um þetta eru til ályktanir frá síðasta Alþýðusambands þingi þar sem segir meðal annars að almenningur skuli njóta góðs af lækkun vaxta á skuldabréfamarkaði. Einnig var samþykkt ályktun um að sjóðirnir fjárfesti ekki í fyrirtækjum sem greiða ofurlaun og bónusa.

Það kemur fram í málflutningi fyrrum formanns LIVE að stjórnin hafi stefnt að vaxtahækkun í þessum lánaflokki í heilt ár. EITT ÁR!!

Höfðu þá SA vitneskju um að til stæði að hækka vexti á meðan okkur var lofað að eftirgjöf af launakröfum fæli í sér lækkun vaxta?

Voru þetta allt saman eintómar blekkingar?

Í ljósi þess að engin haldbær rök voru fyrir hækkun sjóðsins á breytilegum vöxtum, þvert á móti hefðu þeir átt að lækka, og að stjórn sjóðsins „fannst“ vextir vera orðnir of lágir, og breyttu þannig um viðmið í miðri á, má spyrja um réttarstöðu þeirra sjóðfélaga sem eru með lán á breytilegum vöxtum hjá sjóðnum.

Guðrún Hafsteinsdóttir bítur svo hausinn af skömminni með því að kalla eftir viðbrögðum FME vegna breytinga sem við gerðum á fulltrúum okkar í stjórn LIVE. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Samtök atvinnulífsins vilja ráða eða hafa áhrif á það hvaða fulltrúa verkalýðshreyfingin skipar á móti þeim í stjórn. Af hverju ætli það sé?

Ef Guðrún Hafsteinsdóttir kallar eftir viðbrögðum FME vegna þeirra breytinga sem við samþykktum á stjórn sjóðsins, og erum í fullum rétti til, þá mætti hún láta nokkrar af glórulausum fjárfestingum sjóðsins fylgja með í þeirri beiðni um skoðun.

Það er löngu orðið tímabært að sjóðfélagar og almenningur, í gegnum verkalýðshreyfinguna, standi í lappirnar gegn vaxtaokri og öðru siðleysi sem fengið hefur að þrífast innan lífeyrissjóðakerfisins alltof lengi.