Vissir þú þetta um gler?

Gler hefur marga góða eiginleika og býr yfir fjölmörgum kostum. Gler er búið til úr sandi, kalki og sóda (natróni) og kostir þessara blöndu eru mjög góðir.

Helstu kostir glers eru:

  • Hefur ekki áhrif á bragðskyn
  • Drekkur ekki í sig spilliefni
  • Gefur ekki frá sér spilliefni
  • Er lyktarlaust
  • Auðvelt að þrífa
  • Er besta geymsluílátið sem völ er á fyrir matvæli og drykki

Gler bráðnar við 1500 gráðu hita sem drepur hvers kyns bakteríur og brennir upp hættuleg efni sem hafa náð að festast við yfirborð þess.  Staðreyndin er sú að glerílát, eins og krukkur og flöskur eru margfalt betri valkostur fremur en plastílát vegna alls þessa.

Flaska úr margnota gleri er notuð allt að 50 sinnum áður en hún er brædd. Endurvinnsluhlutfall glers er mjög hátt eða yfir 80-90% og er þar fremst í flokki endurvinnanlegra hráefna og vel það. Kosturinn við glerið er að hægt er að vinna endalaust nýtt gler úr gömlu.  Engin efnahvörf verða á milli umbúða og innihalds glers.  

Hægt er að gera enn betur með því að nýta gler í meiri mæli en gert er í dag. Meðal annars er hægt að gera það með því að auka vægi drykkjarfanga í gleri.  Hér áður fyrir voru glerflöskur fremstar í flokki fyrir drykkjarföng og ýmis matvæli. Kannski væri ráð að taka það til fyrirmyndar.