Sjöfn Þórðar heimsótti Birnu G. Ásbjörnsdóttur doktorsnema í heilbrigðisvísindum og matgæðing með meiru í þættinum Fasteignir og Heimili síðasta sumar og fékk Birnu til að elda einn af uppáhaldsréttum fjölskyldunnar og leyfa áhorfendum að njóta. Birna gerði pítsu með hvítkálsbotni og sagði að fjölskyldan bakaði gjarnan saman pítsu með hollum og góðum botin og nýtu það hráefni sem til væri að hverju sinni. Birna nefndi jafnframt að hver og einn fjölskyldumeðlimur fengi að njóta sín og velja ofan á sína pítsu sem bragðlaukarnir girnast. Birna leggur mikið upp úr því að elda frá grunni, vera með lífrænt og gott hráefni og helst íslenskt gæðahráefni eins og hægt er. Þegar Birna og fjölskyldan elda saman er huga að öllu, samverunni og líka gæðum þess sem borða er. Einnig er lögð áhersla á fara vel með hráefnið og sporna gegn matarsóun.
Birna G. Ásbjörnsdóttir doktorsnemi í heilbrigðisvísindum og matgæðingur með meiru.
Matarmikla pítsan með hvítkálsbotninum hitti svo sannarlega í mark, þar sem ástríðan í pítsugerðinni var í forgrunni og hráefnið fyrsta flokks. „Guðdómlega ljúffeng pítsa,“ voru fyrstu viðbrögð Sjafnar og sagði að þessa yrðu allir að prófa. Matarupplifun sem gefur bragðlaukunum gull í mund og eykur vellíðan. Birna svipti hulunni af uppskriftinni sem sló rækilega í gegn og var vinsælasta uppskriftin af pítsu á árinu 2020. Hér kemur uppskriftin af heiðarlegu og guðdómlega ljúffengu pítsunni sem á vel við í janúar.
Heiðarleg Hvítkálspítsa að hætti a la Birnu
Botn
½ haus hvítkál, rifinn smátt
½- 1 laukur ef vill, rifinn smátt
1 bolli rifinn ostur eða vegan ostur
1 egg (má sleppa ef vegan)
1 msk þurrkað oregano
Byrjið á því að hita ofninn í 200°C. Blandið saman í skál. Setjið í ofnskúffu eða plötu og þrýstið öllu niður og mótið botninn. Betra að hafa botninn frekar þunnan. Bakið við 200° C í 10-15 mínútur.
Álegg
2-3 msk tómatpúrra
1 rauðlaukur í þunnum sneiðum
4-5 sveppir í sneiðum
½ gul eða rauð paprika í sneiðum
Nokkrir kirsuberjatómatar heilir eða skornir í tvennt
1 ferskur rauður chilli, skorinn niður og fræin tekin úr ef vill
½ bolli svartar ólifur
2 msk hreinn rjómasotur
Nokkrar sneiðar af geitaosti eða 2 msk af geitarjómaosti
1 bolli rifinn ostur eða vegan ostur
Tómatpúrru smurð á botninn og restinni raðað fallega yfir. Endið á rjómaosti, geitaosti og síðast rifnum osti stráð yfir. Bakað við 200° C í um það bil 20 mínútur eða þar til osturinn er alveg bráðinn.
Gott að bera fram með parma skinku og/eða fersku klettasalati og kryddjurtum (basil, steinselja, oregano). Gott að enda á því að setja heimalagaða hvítlauksolíu yfir.
Hvítlauksolía
(best að útbúa aðeins áður til að fá mildara bragð)
1-2 bollar extra virgin olifu olía
½ - 1 hvítlaukur afhýddur og pressaður eða saxaður mjög smátt.
Sett í skál og látið standa við stofuhita.
Njótið vel.