Við eigum og getum nýtt matvælin miklu betur

Rakel Garðarsdóttir stofnandi Vakandi verður hjá Sjöfn Þórðar í þættinum Fasteignir og Heimili í kvöld:

Í dag er mikið rætt um að sporna gegn matarsóun og æ fleiri taka þátt í að gera betur. Þar má nefna stórmarkaði, nýlenduvörurverslanir og heimilin sem geta saman lagt mikið af mörkum og um leið hagrætt og sparað á ýmsum sviðum. En hvað geta heimilin gert til að sporna gegn matarsóun og nýta matvælin betur? Sjöfn Þórðar hittir Rakel Garðarsdóttir hjá Vakandi, samtök sem vilja auka vitundavakningu um sóun matvæla og ræðir við hana um hvernig staðan er í dag og hvar sóknarfærin séu til að gera betur.

„Það sem er sniðugt í dag að flest allar verslanir á Íslandi eru að bjóða upp matvæli sem eru við það að renna út á dagsetningu eða einhverja hluta vegna í útlitsgölluðum umbúðum eða vörur sem er á niðursettu verði,“ segir Rakel og hvetur fólk til að fylgjast vel með vörum á niðursettu verði í verslunarferðum sínum í matarvörubúðinni.

„Ef maður kann að fara með þau matvæli, búa til úr þeim rétti og nýta ímyndunaraflið er sparnaðurinn heilmikill eða allt að 70 til 90 prósent ódýrara heldur en sambærileg vara sem er alveg fersk og sér ekki á,“ segir Rakel og tekur fram að þarna séu sóknarfæri fyrir heimilin að slá nokkar flugur í einu höggi, sparnaður fyrir budduna, fækka kolefnissporunum og huga að umhverfinu svo dæmi séu tekin.

Rakel er góð í því að töfra fram gómsæta rétti úr afurðum sem eru komnar á síðasta snúning og má þar nefna grænmetið sem hægt er að bjarga og nýta með margvíslegum hætti. Meira um þetta og góð ráð fyrir heimilin í þættinum í kvöld.

Þátturinn Fasteignir & Heimili verður á dagskrá í kvöld klukkan 20.30 og er að jafnan ferskur, fjölbreyttur og með persónulegum blæ.