Verðmunur á ávöxtum allt að 180%

Bónus í Ögurhvarfi var oftast með lægsta verðið þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í átta verslunum á höfuðborgarsvæðinu fimmtudaginn 4. febrúar. Bónus var lægst í 81 tilviki, Krónan í 23 tilfellum og Fjarðarkaup 16.

Hæsta verðið var oftast að finna í Iceland Engihjalla eða í um þriðjungi tilvika. Munurinn á hæsta og lægsta verði vöru í könnuninni var frá 7% upp í 180%. Oftast var á milli 25-50% verðmunur á hæsta og lægsta verði. Könnunin var gerð í lágvöruverðsverslunum og stórmörkuðum.

Þegar rýnt hillur lágvöruverðsverslana kemur í ljós að verðbilið milli þeirra er í um þriðjungi tilvika um og undir 2 kr. hjá Bónus og Krónunni og einnig á milli Krónunnar og Nettó. Þannig kostar 200 ml. af NAN 1 barnamjólk 157 kr. hjá Bónus, 158 kr. hjá Krónunni og 159 kr. hjá Nettó. En þessa uppröðun á verði á milli þessara verslana má sjá á fleiri stöðum í könnuninni.   

Af þeim vörum sem skoðaðar voru var mestur verðmunur á ávöxtum og grænmeti, eða 31-180%. Mestur verðmunur var á frosnu mangó í bitum sem var dýrast á 1.396 kr./kg. hjá Samkaupum-Úrvali en ódýrast á 498 kr./kg. hjá Bónus sem er 898 kr. verðmunur eða 180%. Það var einnig mikill verðmunur á frosnum jarðaberjum sem voru dýrust á 1.140 kr./kg. hjá Hagkaupum Skeifunni en ódýrust á 415 kr./kg. hjá Bónus sem er 175% verðmunur. 

Af ávöxtum og grænmeti var minnstur verðmunur var á íslenskri agúrku sem var dýrust á 656 kr./kg. hjá Samkaupum-Úrvali en ódýrust á 477 kr./kg. hjá Bónus sem er 31%. Af öðrum vörum má nefna að mikill verðmunur var á Lambhagasalati í potti sem var ódýrast á 245 kr. hjá Víði en dýrast á 359 kr. hjá Iceland sem gerir 47% verðmun.