Veraldarvinir hreinsa strendur Íslands í samstarfi með Bónus

Um það bil 1500 sjálfboðaliðar koma til landsins á vegum Veraldarvina árlega og einbeita sér að náttúruvernd, m.a. með því að leggja gönguleiðir og rækta plöntur en einnig með hreinsun íslensku strandlengjunnar. Mikið magn af plasti, netadræsum og öðru rusli rekur á íslenskar strandir og hafa sjálfboðaliðar Veraldarvina safnað slíku rusli um allt land í vetur.

Veraldarvinir eru íslensk sjálfboðasamtök sem setja umhverfismál í öndvegi. Markmið Veraldarvina er að stuðla að heilbrigðum lífsháttum og betri umgengni manna við umhverfið. Bónus er stoltur samstarfs- og styrktaraðili Veraldarvina og er bakhjarl þessa verkefnis.

Í janúar stóðu Veraldarvinir ásamt Hrafni Jökulssyni að sýningunni “Kolgrafarvík kemur í bæinn” sem haldin var við Reykjavíkurhöfn. Þar gátu gestir skoðað afrakstur hreinsuninnar og einstaka náttúru Árneshrepps. Þessa dagana eru Veraldarvinir að flytja sýninguna og stefna að því að setja hana aftur upp á næstu vikum.

M&H Bónus.jpg

Hér má hluta af því sem finnst með fram strandlengjum landsins./Myndir aðsendar Bónus.

M&H Bónus Veraldarvinir 1.jpg