Valgerður Árnadóttir, varaþingmaður Pírata, virðist hvorki vera hrifin af tónleikagestum né tónleikum sem Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, hélt í gær, að minnsta kosti ef marka má nýjasta tíst Valgerðar.
„Ég væri alveg til í að fá lista yfir þá sem mættu á Bingó Veðurprump í gær svo ég geti forðast þá…,“ skrifar Valgerður á Twitter.
Ég væri alveg til í að fá lista yfir þá sem mættu á BIngó Veðurprump í gær svo ég geti forðast þá.. https://t.co/K66rsHswU4
— Valgerður Árnadóttir 🇺🇦 (@ValaArna) March 11, 2023
Ingó hefur verið fjarri sviðsljósinu í tæplega tvö ár eftir að ásakanir um kynferðisofbeldi og áreitni á hendur honum voru settar fram opinberlega. Hann hefur sjálfur vísað þessum ásökunum alfarið á bug.
Ingó hóf að selja miða á ferna tónleika fyrir skemmstu, en þetta er í fyrsta skipti sem hann kemur fram opinberlega á tónleikum síðan ásakanirnar voru lagðar fram.
Tvennir tónleikar voru haldnir í gærkvöldi og verða tvennir tónleikar haldnir í kvöld í Stóra salnum í Háskólabíó.
Með tísti Valgerðar fylgdi myndskeið sem tekið var upp á tónleikunum gær og hefur farið eins og eldur um sinu samfélagsmiðla og vakið talsverða reiði. Í myndskeiðinu má sjá tvo menn sem mættu á tónleikana og viðhefur annar þeirra vægast sagt ófögur ummæli.
„Nú erum við mættir hérna á Ingó... en nú erum við sáttir með það að femínistadruslurnar, að þær eru ekki hér. Nú erum við bara femínistalausir í tvo klukkutíma. Skál fyrir því,“ má heyra í myndskeiðinu.
Ólöf Tara, ein þeirra sem stendur að baki Öfgum, setur einnig athugasemd við myndskeiðið.
„Miðbærinn aldrei verið jafn öruggur rétt fyrir, rétt eftir og á meðan tónleikarnir eru í gangi,“ skrifar Ólöf Tara.