Uppskrift: lambahryggur ala amma sem svíkur engann er uppáhalds hjá berglindi hreiðars

Haustið er skollið á með allri sinni fegurð og því fylgir líka að flestir fara að gefa sér meiri tíma í eldhúsinu og elda sína uppáhalds haustrétti. Haustinu fylgir nefnilega líka ákveðnar matarvenjur, hefðir og siðir. Sjöfn Þórðar heimsótti Berglindi Hreiðarsdóttir matar- og kökubloggara með meiru og fékk hana til að segja frá sínum uppáhalds haustrétti og hvað heillar hana við haustið.

Áttu þér þinn uppáhalds haustrétt?

„Held ég verði að segja lambahryggurinn hennar ömmu ala amma Guðrún sem er á síðunni minni,  https://www.gotteri.is/2019/09/18/lambahryggur-ala-amma/ Það er ótrúlega fyndið að svona mat gerir maður ekkert allt sumarið og svo elska ég alls konar pottrétti og kósýmat á haustin, bloggið fer alveg yfir á annað tempó.“

Hver er sagan bak við lambahrygginn ala amma?

„Sagan er í blogginu mínu en amma Guðrún eldaði alltaf svona lúxus handa mér þegar hún var á lífi og ég yngri og síðan snerist það við í seinni tíð og ég fór að bjóða henni. Amma Guðrún bjó alltaf ein og það sem hún dekraði okkur systurnar upp úr skónum. Ef okkur langaði í hrygg var að sjálfsögðu keyptur hryggur og eldaður með öllu tilheyrandi, þó svo við værum stundum bara tvær.  Í seinni tíð, eins og ég nefndi hafði ég það sem reglu að bjóða ömmu alltaf í mat þegar ég eldaði hrygg eða annað lambakjöt því hún eldaði ekki mikið sjálf í seinni tíð og fyrir það var hún ávallt þakklát.  Ég er ein af fáum vinum mínum sem elda svona mat  í dag en ég man vel eftir því þegar ég hringdi til að fá uppskriftina þegar ég fór að búa rúmlega tvítug. Uppskriftin er skrifuð í gamla ljóðastílabók sem ég notaði í Menntaskólanum við Sund ásamt öðrum uppskriftum. Það eru því heldur betur breyttir tímar hvað þetta varðar en hryggurinn breytist þó ekki neitt, sama hvaðan uppskriftin kemur.“

Hvað finnst þér skemmtilegast og fallegast við haustið?

„Það sem mér finnst fallegast og skemmtilegast við haustið eru haustlitirnir, rútínan og lyktin úti þegar það fer aðeins að kólna. Haustið er klárlega minn uppáhaldstími á árinu og eru fallegir haustdagar dásamlegir til þess að fara í fjallgöngur og njóta útiveru að mínu mati.“

Lambahryggur ala amma Guðrún

fyrir um 6-8 manns

Lambahryggur

  • Ferskur lambahryggur frá Kjötbúðinni (um 3 kg)
  • Lambakjötskrydd Kjötbúðarinnar
  • 1 msk. ólífuolía
  • 50 g smjör
  • 700 ml vatn
  • ½ laukur
  • 1 stk. gulrót
  1. Hitið ofninn í 150°C gráður
  2. Skolið og þerrið hrygginn vel og nuddið á hann ólífuolíunni.
  3. Kryddið vel með lambakjötskryddblöndu Kjötbúðarinnar (ekki gleyma lundunum undir).
  4. Setjið í stóran steikarpott, smjörklípur hér og þar ásamt lauk og gulrót í um þremur bitum (laukur og gulrót aðeins upp á betra soð í sósuna).
  5. Leyfið hryggnum að malla í ofninum í um 3 klukkustundir (1 klst. kílóið) og ausið yfir hann soði úr botninum á um það bil 45 mínútna fresti. Þið sem notið kjöthitamæli getið farið í skref 6 þegar kjarnhiti er orðinn 65-70 en þegar hann er eldaður svona „ömmustyle“ þá finnst mér hann alveg mega vera meira eldaður en minna.
  6. Hellið nú soðinu í pott í gegnum fínt sigti til að geta byrjað á sósunni.
  7. Hækkið hitann í 200°C og takið lokið af steikarpottinum.
  8. Fylgist vel með skorpunni og takið hrygginn út úr þegar hún er orðin stökk (tekur um 15 mínútur) og leyfið að standa í að minnsta kosti 15 mínútur áður en hann er skorinn niður.  Passið ykkur þó að taka hann ekki út fyrr en skorpan er orðin stökk, án þess að hún brenni auðvitað. Nokkrar mínútur til eða frá skipta sköpum upp á að þetta heppnist svo standið vaktina vel í lokin. 

Brún sósa

  • Soðið úr steikarpottinum
  • 400 ml vatn
  • 500 ml rjómi
  • 1 tsk. lambakraftur
  • 1 msk. púðursykur
  • Salt og pipar eftir smekk
  • Maizenamjöl og sósulitur
  1. Hellið vatninu saman við soðið og náið upp suðunni.
  2. Þykkið aðeins með maizenamjöli og bætið sykri, krafti og rjóma saman við og hrærið vel.
  3. Litið með sósulit sé þess óskað og smakkið til með salti, pipar eða meiri lambakrafti.
  4. Leyfið sósunni að malla á meðan kjötið klárast að eldast og á meðan það hvílir.

Karamellukartöflur

  • Kartöflur 12-16 stk. meðalstórar
  • Sykur
  • 50 g smjör 
  1. Sjóðið og flysjið kartöflurnar og skerið þær til helminga.
  2. Setjið botnfylli af sykri á pönnu (um ½ cm þykkt lag) og stillið á hæsta hita.
  3. Hristið pönnuna og varist að sykurinn brenni þegar hann byrjar að bráðna.
  4. Þegar hann er bráðinn má lækka vel niður í hellunni, setja smjörið saman við og hræra vel þar til karamella hefur myndast.
  5. Hrærið kartöflunum varlega saman við karamelluna og hjúpið vel.
  6. Setjið kartöflurnar í ílát og notið sykurlöginn sem eftir er á pönnunni fyrir gulræturnar (sjá uppskrift að neðan).

Sykraðar gulrætur

  • 7-8 stk meðalstórar gulrætur
  • Sykurlögur af kartöflunum
  1. Skerið gulræturnar í bita og sjóðið þar til þær mýkjast.
  2. Látið vatnið renna af og veltið upp úr sykurleginum sem eftir stóð hjá kartöflunum.

Annað meðlæti

  • Grænar baunir úr dós
  • Rauðkál úr dós (það má þó auðvitað gera heimalagað)
  • Rifsberjasulta

 

Njótið vel.