Uppljómun á fimmta degi og líkaminn núllstilltur

Eftir páskahátíðina eru fjölmargir sem vilja fara í átak fyrir líkama og sál og nú stilla sig fyrir sumarið. Borða hollari mat og stunda heilbrigða hreyfingu og koma sér í form eftir að hafa verið í vellystingum um súkkulaði hátíðina.

Safahreinsun fyrir líkama og sál nærir og gefur

Karen Jónsdóttir, Kaja eins og hún er alla jafna kölluð, frumkvöðull, stofnandi og eigandi Matarbúrs Kaju og Café Kaju á Akranesi býður upp á safahreinsun að nokkru sinnum á ári sem stendur yfir í viku og hefur notið mikilla vinsælla síðustu misseri. Hún ætlar að bjóða uppá safahreinsun eftir páska sem hefst 10.apríl með undirbúning og fyrstu safar til drykkjar verður mánudaginn 12.apríl. Þátt­tak­end­ur dag­leg­an skammt af vand­lega sam­sett­um söf­um sem hugsaðir eru til að hreinsa og næra lík­amann eins vel og kost­ur er. Ein­göngu er notað hágæða líf­rænt hrá­efni. Ávallt ný brögð, full af orku og trefjaefnum fyrir líkama og sál.

M&H Safar.jpg

Safarnir eru litríkir og fallegir og bragðast ómótstæðilega vel.

Á fimmta degi verður uppljómun

Þeir sem hafa tekið þátt í safa­hreins­un­inni verða flest­ir trygg­ir aðdá­end­ur og koma aft­ur og aft­ur, þetta verður í raun hluti að lífstíl. „Fólk finn­ur mik­inn mun,” seg­ir Kaja. „Fyrstu tveir til þrír dag­arn­ir eru erfiðir sér­stak­lega þegar fólk er að fara í hreins­un í fyrsta sinn en á þriðja til fimmta degi verður oft svo­kölluð upp­ljóm­un. Bólg­ur minnka og jafn­vel hverfa, skapið verður létt­ara og svo verður bara öll líðan svo ein­stök. Ég fer í safa­hreins­un tvisvar á ári, á vor­in og svo haust­in og það held­ur mér gang­andi,” seg­ir Kaja um safa­hreins­un­ina en slík­ar hreins­an­ir hafa notið mik­illa vin­sælda og hafa sannað gildi sitt. „Í upp­hafi var ég ein að vesen­ast í þessu en í gegn­um árin hef ég fengið sam­ferðafólk sem hef­ur hrif­ist af safa­hreins­unni og í dag er þetta orðið að nám­skeiði sem haldið er nokkrum sinnum á ári. Safa­hreins­un­in er ekki megr­un­ar­kúr held­ur er horft á að hvíla líf­fær­in og gefa þeim tæki­færi á að hreinsa út og fara í smá nafla­skoðun og núllstilla sig. Núllstill­ing auðveld­ar að ná tök­um á breytt­um lífs­stíl og að gera breyt­ing­ar á mataræði.

Frumkvöðull á sínu sviðið

Kaja er frum­kvöðull hvað varðar líf­ræn­ar vör­ur og mik­il bar­áttu­kona fyr­ir því að fólk hafi kost á því að neyta líf­rænna vara, bæði með því að flytja inn líf­ræn­ar vör­ur og svo ekki síst með að fram­leiða þær sjálf. Kaja er iðin við að koma nýjar afurðir á markaðinn og sköpun hennar og framreiðsla er stöðugum blóma.

Hægt er að skrá sig í safahreinsun hjá Kaju gegnum netfangið: [email protected] eða gegnum fésbókarsíðu Matarbúr Kaju/Café Kaja.