Hvað er betra en að gera vel við sig og sína á sunnudagskvöldi og elda ljúffengt kálfasnitzel? Fjölskyldan mín veit fátt betra en meyrt kálfasnitzel með gómsætu meðlæti sem kitlar bragðlaukana. Kálfasnitzelið er eitt af uppáhalds réttunum hér á bæ. Ég elda og framreiði snitzelið annaðhvort á ítalska vísu eða austurríska. Ég legg mikið upp úr því að leggja fallega á borð, kveikja á kertum og framreiða máltíðina á metnaðarfullan hátt og eiga góða samverustund með fjölskyldunni meðan við njótum þess að snæða kvöldverðinn saman. Maður er manns gaman og matur er mannsins megin eru orð að sönnu.
Ljúffenga kálfasnitzelið að hætti Sjafnar
Fyrir 5 manns
- 1200 g kálfasnitzel (fæst yfirleitt alltaf í Melabúðinni) barið vel niður með buffhamri
- 200 g hveiti (má sleppa, ég nota ekki hveitið en sumir nota það til að eggjahræran haldist betur á)
- heimatilbúið rasp eða rasp keypt út í búð frá Paxo, gott að blanda heimatilbúnu brauðraspi við það
- 2 egg
- sítrónupipar
- Olífuolíu eða smjör til steikingar (ég nota olífuolíu)
- Rifinn ferskan parmesanostur – má sleppa
- Mozzarella ostakúla – má sleppa
Setjið brauðrasp á djúpan disk, pískið eggin saman í skál og setjið á annan djúpan disk. Dýfið nú sneiðunum, einni í einu, fyrst upp úr eggjunum og síðan raspblöndunni. Kryddið með sítrónupipar eftir smekk.
Hitið olífuolíu eða smjör á pönnu og steikið sneiðarnar. Þar sem að þær eru stórar rúmast varla fleiri en ein til tvær á pönnunni í einu. Sneðarnar eiga að verða ljósbrúnar og stökkar. Ekki hafa á hæsta hita en vel yfir miðlungshita og ekki spara olíuna/smjörið of mikið. Haldið tilbúnum sneiðum heitum í fati í ofni á vægum hita, 150°C án blásturs. Passar vel að hafa sneiðarnar inni í 15 mínútur við vægan hita áður en þær eru bornar fram.
Ef þið viljið ost á sneiðarnar er upplagt að strá yfir parmesanosti eða skera mozzerallakúluna í sneiðar og leggja yfir sneiðarnar áður en þær fara inn í ofn. Mörgum finnst það rosalega gott og kitla bragðlaukana enn frekar.
Ef þið viljið nota heimatilbúið rasp þá er þetta aðferðin til þess: Raspið er hægt að gera með því að setja til dæmis sneiðar af bagettu í ofn og baka þær til að þær eru orðnar harðar en ekki brenndar. Mylja síðan niður í matvinnsluvél.
Meðlætið hef ég annað hvort á ítalska vísu eða á austuríska vísu.
Ef ég elda og framreiði þennan rétt á ítalska vísu þá set ég gjarnan mozzarella ostsneiðar á kjötsneiðarnar, sýð spaghetti með og geri ítalska tómatastósu með basilku. Ber fram með rifnum parmesanosti og salati. Þetta er sturlað gott.
Ef ég elda þennan rétt og framreiði á austurríska mátann, þá er ég með steikarfranskar, piparsósu, maís, salat og sítrónusneiðar. Meyrt og ljúft undir tönn.
Verði ykkur að góðu.