Tryllingslega litaglaðir marengspinnar í barnaafmælið

Nú má loksins fara að halda afmæli og það mun svo sannarlega gleðja yngri kynslóðina. Þá er gaman að geta boðið uppá frumlegar og skemmtilegar kræsingar sem gleðja barnsandlitin. Berglind Hreiðars köku- og matarbloggari sem heldur úti síðunni Gotteri og gersemar elskar að undirbúa afmæli, sérstaklega barnaafmæli og kemur iðulega með nýjungar í hverri veislu. Hér er hún búin að töfra fram tryllta marengspinna sem gleðja bæði augu og munn.

„Ég hef lengi ætlað að prófa að gera svona marengspinna eða marengssleikjó og þetta var sko ekkert mál og algjör snilld að nota marengsduftið frá Dr.Oetker í verkið. Hver hefði trúað því að upp úr svona poka kæmu þessi fallegheit. Marengsduftið frá er töfrum líkast Dr.Oetker .“

Hér kemur uppskriftin og þetta gerist ekki einfaldara.

M&H Marengspinnar 2.jpg

Marengspinnar

Um 8-10 stykki

  • 2 pokar Dr. Oetker marengsduft
  • 150 ml vatn
  • Matarlitir
  • Dr.Oetker „Rainbow Mix“
  • Pappaprik
  1. Hitið ofninn í 100°C.
  2. Þeytið marengsduft og vatn saman í um tvær mínútur eða þar til topparnir halda sér vel og blandan er stífþeytt.
  3. Skiptið blöndunni niður eftir því hversu marga litatóna þið viljið hafa.
  4. Setjið smá matarlit í hverja skál og blandið varlega saman og setjið næst í sprautupoka með mismunandi stútum (ég notaði mismunandi stóra stjörnustúta í bland við stóran laufastút).
  5. Sprautið línur úr marengs (um 3-4 cm langar) á miðjan bökunarpappírinn með góðu bili á milli, komið pappapriki fyrir og skreytið síðan hvern pinna að vild. Best er að sprauta þétt mynstur, hvort sem það er í einum lit eða mörgum. Ég gerði síðan nokkra marengstoppa úr restinni.
  6. Þegar búið er að sprauta er fallegt að strá kökuskrauti yfir allt saman fyrir bakstur.
  7. Bakið í 75 mínútur, slökkvið á ofninum og opnið litla rifu, leyfið að kólna í um klukkustund áður en þið losið af plötunni.

Því næst er að skreyta marengspinna að hjartans list og leyfa hugmyndafluginu að njóta sín.

M&H Marengstoppar skrautið.jpg

Hér má sjá útkomuna með notkun á mismundandi stútum sem gera marengspinna svo líflega og skemmtilega./Ljósmyndir Berglind Hreiðars.

Berglind er með trixin á hreinu þegar kemur að því að velja réttu stútana „Ég notaði stút 2D frá Wilton til að gera rósettur og stjörnur, bæði bleikar og hvítar, síðan var ég með stóran laufstút fyrir bláa mynstrið og gerði bara zik-zak hingað og þangað með mjórri endann vísandi upp. Græni marengsinn er síðan þéttur stjörnustútur sem ég ýmist sprautaði stjörnur með eða bústnar línur.“

Síðan er bara að skreyta veisluborðið með þessum litaglöðu marengspinnum og gera sér glaðan dag.