Svona nærðu kertavaxi úr dúkum

Nú er þessi árstími sem notkun á kertum er hvað mest og á kertavaxið til að leka í sparidúkana yfir hátíðarnar.  Þá er nauðsyn að búa yfir töfraráði til að ná kertavaxinu úr.  Byrja þarf á að ná sem mestu af vaxinu burt. Það er auðveldast með því að frysta eða kæla vaxblettinn og skafa sem mest af. Ef um litlaust vax er að ræða getur verið gott að leggja eldhúspappír yfir og strauja með volgu staujárni yfir.  Ef vaxið er litað er betra að nota rauðspritt eða brennsluspritt til að ná blettinum úr eða jafnvel hreinsað bensín ef liturinn er sterkur.  Kertavaxleifar leysast upp við 60° gráður hita og ef dúkurinn eða flíkin þolir þann hita er best að þvo hann strax eftir blettahreinsunina.