Svei þeim sem eru á öndverði skoðun

Nú er svo komið hjá frjálslynda fólkinu að aðeins er leyfð ein skoðun á hverju málefni. Allir verða að vera eins og hegða sér eins. Svei þeim sem eru á öndverði skoðun um fóstureyðingar, kynrænt sjálfræði, femínisma, umhverfismálum, stefnu í innflytjendamálum svo ekki sé talað um þá sem hafa efasemdir um hlýnun af mannavöldum sem leiði til endaloka mannkyns á næstu árum. Slíkt þurfi að gera refsivert eins og fyrir þá sem afneita helförinni.

Þeir sem hafa aðra skoðun á þessum málum þarf að útskúfa með öllum tiltækum ráðum. Ef það er ekki hægt þarf að mótmæla þessu fólki vogi það sér að koma til landsins. Merkilegt er að þetta fólk með „röngu“ skoðunina er ekki með þessa útskúfunartilburði og mótmæli gegn þeim með aðra skoðun. Því veltir maður fyrir sér hver er fasistinn í sögunni.

Fólk sem leyfir engin frávik frá pólitískri rétthugsun tapar óhjákvæmilega allri kímnigáfu og skopskyni. Held að það sé hættulegra fyrir mannkynið en hlýnun jarðar.