Súkkulaðiunnendur geta hlakkað til jólanna

Margir súkkulaðiunnendur hafa beðið spenntir eftir vetrarlínu Omnom sem ávallt tengir við jólin. Nú er biðin á enda, vetr­ar­lína Omnom er kom­in út og sæk­ir inn­blást­ur sinn í alís­lensk­ar jóla­hefðir sem ylja lands­mönn­um um hjartaræt­ur með minn­ing­um liðinna jólahátíða. Omnom sæk­ir inn­blást­ur í mat­ar­hefðir, bragðtóna og venj­ur sem hringja inn jól­in. Að þessu sinni urðu þrjár bragðteg­und­ir liðinna ára fyr­ir val­inu og færa lands­mönn­um hinn sanna íslenska jóla­anda.

Einnig er gjafaaskja Omnom með vetrarlínunni komin í hús og inniheldur vetrarsúkkulaðistykkin, í vetrarlínu Omnom. Gjafaöskjurnar eru mikið augnakonfekt og vekja eftirtekt fyrir einstaklega fallegar og smekklegar umbúðir sem ættu að sóma sér vel í jólapakka allra súkkulaðiunnenda og fagurkera.

Bragðtegundirnar þrjár í vetrarlínu Omnum sem um ræðir eru eftirfarandi:

Dark nibs + Raspberry

Madaga­sk­ar kakóbaun­in á sér­stak­an stað hjá Omnom en hún er upp­haf fyr­ir­tæk­is­ins. Marg­slungn­ir, fín­gerðir tón­ar og fislétt rauðberja­bragðið ger­ir Madaga­sk­ar 66% súkkulaðið að einu stóru ástar­ævin­týri fyr­ir bragðlauk­ana.  Líkt og hefðin er á jól­um, vild­um við einnig klæða súkkulaðið okk­ar í spari­föt­in.  Hátíðlega fag­urrauð hind­ber með sinn sér­staka sæta keim, pöruð með væn­legu dassi af kakónibb­um full­komna pakk­ann. 

Milk + Cookies

Það er ómögu­legt að hugsa til jóla án þess að upp komi í hug­ann minn­ing um glas af ís­kaldri mjólk og pip­ar­kök­um. Omnom vildi fanga þess­ari minn­ingu og leitaði því til Brauð&co með hjálp við að búa til hina full­komu krydduðu smá­köku. Grunn­ur­inn var unn­inn úr af­gangs möndl­um úr fram­leiðslunni Omnom, trölla­höfr­um og ríku­legu magni af engi­fer og kanil. Smá­kök­urn­ar liggja í ljúf­um faðmi Madaga­sk­ar mjólk­ursúkkulaðis og sam­an er þetta par ósigrandi.

Spiced White + Cara­mel 

Malt og App­el­sín. Kryddað, maltað hvítt súkkulaði með app­el­sínu­berki, kanil og stökkri kara­mellu. Þessi blanda kem­ur öll­um í jólafíl­ing.  Flest­ir Íslend­ing­ar halda fast í þessa ríku­legu hefð af hátíðlegri bragðupp­lif­un, sem er engri lík. Þetta súkkulaði er óður Omnom til jól­anna. 

Vetr­ar­lína Omnom er ein­ung­is til í tak­mörkuðu upp­lagi.