Kaja Organic fækkar kolefnissporum enn frekar eftir undirritun nýs samnings um dreifingu. Karen Jónsdóttir, sem er að alla jafna kölluð Kaja, frumkvöðull með meiru hjá Kaja Organic, eigandi Matarbúr Kaju/Café Kaju og framleiðandi á vörumerkinu Kaja hefur undirritað samning við Samskip Landflutninga um dreifingu á höfuðborgarsvæðinu.
„Með þessum samning nýtum við dreifikerfi Samskips Landflutninga og fækkum því kolefnissporum okkar enn frekar. Við erum stolt af því að gera betur í umhverfismálum en með dreifingu og framleiðslu á lífrænum matvælum í umhverfisvænum umbúðum stuðlum við að færri kolefnissporum en ella, hreinni jörð og heilsusamlegra líferni,“ segir Kaja.
Lífrænar, umhverfisvænar gæða vörur í forgrunni
Kaja Organic er heildsala, framleiðandi og eigandi Matarbúrs Kaju/Café Kaju á Akranesi sem er verslun og lífrænt kaffihús í senn sem hefur að geyma fjölbreytt úrval af vörum lífrænum og umhverfisvænum sælkeravörum og kræsingum. Kaja er konan á bak við þetta allt saman. Hennar regla er einföld þegar kemur að vöruvali: „Allar vörur eru lífrænar, umhverfisvænar og gæðin í hámarki.“
Kaja trúir því staðfastlega að við séum það sem við borðum og með þann boðskap að leiðarljósi stofnaði hún Kaja Organic, Matarbúr Kaju og Café Kaju sem blómstrar á Skaganum og gleður líkama og sál.