Í kvöld ætlar Sjöfn Þórðar að heimsækja Hafnartorgið sem er kærkomin viðbót í miðbæjarflóruna og hefur gjörbreytt ásýnd hafnarsvæðisins til hins betra. Glæsilegar fasteignir hafa risið upp og tengt gamla tímann við hin nýja með glæsilegri útkomum. Í tilefni þess og í aðdraganda jólanna heimsækir Sjöfn, Bergþóru Steinunni Stefánsdóttur svæðisstjóra Regus og fær innsýn í starfsemi og húsakynnin sem í boði eru hjá Regus. Regus býður meðal annars uppá nútímalegt starfsumhverfi og lausnir fyrir sameiginleg vinnusvæði með góðri útkomu. Vert er einnig að minnast á það að Regus býr yfir stærsta þjónustuneti heims sem gefur aukin tækifæri til vaxtar fyrir fyrirtæki og þeirra sem nýta sér þjónustu Regus. Sjón er svo sannarlega söguríkari.
Þátturinn Fasteignir & Heimili verður á dagskrá í kvöld klukkan 20.30 og aftur klukkan 22.30.