Stemning og stuð í sumar með Omnom S´mores

Í tilefni íslenska ferðasumarsins og stemningunni sem er í loftið hefur Omnom föndrað saman Omnom S´mores Kit til lífga uppá grillstemninguna og kveikja í súkkulaðiástinni í útilegunni.

„Okkur langaði að færa íslenskum ferðalöngum smá bandaríska útilegumenningu beint í æð. Við föndruðum því saman smá “S´mores Kit” til þess að hjálpa Íslendingum að taka útilegustemninguna hér landi upp á næsta stig,“segir Kjartan Gíslason súkkulaðigerðarmaður hjá Omnom.

M&H smores-lifestyle.jpg

Þessi súkkulaði, sykurpúða samloka kallar á freistingar fyrir súkkulaðiunnendur./Ljósmyndir aðsendar.
S´mores er í raun og veru mjög einföld uppfinning/uppskrift. Þú byrjar á því að létt grilla sykurpúða, mjög heitar og skiptar skoðanir eru um hversu mikið eða lítið skal “brenna” sykurpúðann. Þú brýtur svo niður súkkulaðið og klemmir það ásamt grillaða sykurpúðanum á milli tveggja kex kaka. Úr verður gómsæt blanda sem er fullkomið að njóta með fjölskyldu og vinum í sumar. Einhvers konar útilegu eftirréttar samloka.

M&H smores-content.jpg

Omnom S´mores kassinn inniheldur okkar sívinsæla Caramel súkkulaðistykki, ásamt fjórum sykurpúðum, átta hafrakexkökum frá vinum okkar hjá Brauð & Co og svo fjórir bambus prjóna. Allt sem þú þarft til að búa til fjórar gómsætar Omnom s´mores-lokur."

Omnim S´mores kassinn er fáanlegur í takmörkuðu magni í vefverslun Omnom og súkkulaðibúð Omnom út á Granda í Reykjavík.

M&H smores-hero.jpg

*Kynning.