Sjö skrýtnir hlutir sem létta þig

Ef þú ert að reyna að létta þig þá veistu að besta leiðin til að gera það er hollur matur og hreyfing. í grein á vefnum womenshealthmag.com er að finna sjö skrýtna hluti sem geta auðvelt fólki, einkum þó konum, til að grenna sig til muna.

Listinn er birtur á heiluvefnum heilsutorg.is þar sem bent er á þessar óhefðbundnu leiðir sem gætu aukið á kílóamissinn. Og hér kemur hann:

Lykt af piparmyntu.

Að lykta af piparmyntu reglulega getur hjálpað þér með hungurtilfinninguna og dregið töluvert úr henni.

Liturinn á disknum sem þú borðar af.

Rannsókn sem var gefin út í síðasta mánuði sýndi að ef þú notar rauða diska eða skálar þegar þú ert að borða, þá borðar þú minna í einu.

Notaðu peninga, ekki kort.

Að borga með peningum í stað korts á að hjálpa þér að velja hollari mat samkvæmt enn annarri rannsókn.

Súkkulaði.

Að borða súkkulaði getur hjálpað þér að missa fitu af magasvæðinu. Samt ekki fara að raða í þig súkkulaði núna. Fáðu þér súkkulaði 2-3 í viku.

Hitastigið í svefnherberginu.

Lækkaðu hitann í svefnherberginu hjá þér. Rannsókn sem gerð var í fyrrasumar sýndi að fólk sem sefur í köldum svefnherbergjum brennur meiri fitu en ella.

Settu myndir á ísskápinn.

Að hengja myndir af hollustu á ísskápinn þinn gerir það líklegra að þú grípir eitthvað hollt úr honum ef þig langar í millibita yfir daginn.

Heimild: womenshealthmag.com