Myndir af myglu- og rakaskemmdum í húsnæði Heilsuverndar Hjúkrunarheimilis að Grenihlíð hafa vakið hneykslun eftir að þeim var deilt á samfélagsmiðlum fyrr í dag.
Fréttablaðið fjallaði meðal annars um málið.
Í færslunni má sjá skemmdirnar í eldhúsi byggingarinnar þar sem fólki er gefið að borða undir setningunni „Og þetta bjóðum við gamla fólkinu okkar uppá.“
Þóra Sif Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Heilsuverndar, hefur verið í sambandi við fulltrúa ríkisins til að fá nánari upplýsingar en segir að engin aðgerðaráætlun sé komin í gang.
„Það er ekki fyrr en eftir að Heilsuvernd tók yfir sem gerð var krafa um óháða úttekt á stöðunni eins og hún er og þá kemur þetta upp úr dúrnum. Nú erum við að þrýsta á að hægt sé að hefja framkvæmdir.“