Mannlífgreinir frá því í dag að svo virðist sem að streptókokkafaraldur geysi nú hér á landi. Samkvæmt heimildum miðilsins liggja nú rúmlega tíu börn inn á Barnadeild vegna streptókokkasýkingar.
Í venjulegu árferði eru um tvö börn lögð inn á Barnadeild vegna streptókokka. Þá segir miðilinn að mikill skortur sé á sýnatöku pinnum á Íslandi og voru aðeins sjö pinnar til á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í gær.
Dæmi séu um að börnum með einkenni séu gefin sýklalyf án greiningar vegna skorts á sýnatöku pinnum.
Á vef Heilsuveru eru eftirfarandi upplýsingar um streptókokka:
Fólk með streptókokka hálsbólgu hefur yfirleitt ekki hósta, nefrennsli eða roða í augum, heldur eru einkennin oftast:
- Hár hiti eða 38,5°C og yfir.
- Aumir/bólgnir eitlar á hálsi.
Mjög sár verkur í hálsi.