Fatahönnuðurinn Guðmundur Jörundsson, segir Stellu ekkert hafa verið í neinu orlofi í kvikmyndinni Stella í Orlofi sem ætti að vera flestum Íslendingum kunnug.
„Fyrst við erum byrjuð að ritskoða gömul höfundarverk þá vil ég að hættum að gaslýsa Stellu um að hún hafi verið í Orlofi. Myndin fjallar um baráttu hennar við geðillsku karla, tryllt börn og alkóhólista. Hún var augljóslega í burnouti,“ skrifar Guðmundur á twitter.
Hann kemur síðan með nýjan tiltill: „Stella í burnouti“ eða mögulega Stella í geðrofi.
Leikkonan Edda Björgvinsdóttir sem lék Stellu Löve virðist hafa gaman af hugmyndum Guðmundar og setur nokkra hláturs-emoji fyrir neðan færsluna.
🤣🤣🤣🤣🤣
— EddaB (@EddaB14) March 14, 2023