Jóhannes Loftsson, formaður Frjálshyggjufélagsins, segir þá ákvörðun að láta völdin í hendur Víðis, Þórólfs og Ölmu vera siðlausa. Hann segir þá ákvörðun að þvinga fólk í sóttkví með ofurvaldi hafi verið tekin vegna ótta og muni kosta mannslíf og hagkerfið hrynja. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Jóhannes vill opna landið og bjóða upp á „vöru allra tíma“ sem skortur sé á um allan heim um þessar mundir. Sú vara, segir Jóhannes er frelsi og mannréttindi. Hann segir meiri hættu stafa af þríeykinu en kórónaveirunni.
Jóhannes heldur fram að Víðir, Þórólfur og Alma hafi með ofurvaldi svipt Íslendingabæði frelsi og lýðræði í nafni ótta. Við það að missa frelsið missi fólk stjórn á lífinu og þá vaxi ótti og óvissa. Hann bætir við að vegna þessa blasi við „algjört hrun“ og hörmungar af stærðargráðu sem aldrei hefur sést áður. Mesta hættan sé ekki vegna COVID-19 heldur aðgerðum stjórnvalda. Jóhannes segir:
„Á þriðja þúsund Íslendinga deyja ár hvert og hrun hagkerfisins sem mun valda hruni heilbrigðisþjónustu mun hafa verulega neikvæð áhrif á það. Því er algjör hunsun yfirvalda á þessari alvarlegu hættu vegna ofuráherslu á kórónutölfræði hreint galið ábyrgðarleysi sem getur kostað hundruð mannslífa þegar fram í sækir.“
Jóhannes heldur einnig fram að þvinguð sóttkví geri það að verkum að sjúklingar hætti að leita sér aðstoðar. Þeir vilji ekki bera ábyrgð á lokun vinnustaðar eða þá skömm að senda fjölda af saklausu fólki í sóttkví. Þá eigi fólk að fá að velja sjálft hvort það fari í sóttkví eða einangrun.
„Ef þessari siðlausu stefnu yfirvalda er ekki breytt er hætt við að kórónuveiran fari í felur á ný og valdi svo margföldum skaða í seinni bylgju næsta haust þegar smithættan vex aftur.“
Jóhannes telur enn hægt að bjarga ferðamannaiðnaðinum með stefnubreytingu og bjóða upp á „eftirsóttustu vöru allra tíma, sem mikill skortur er á um þessar mundir um allan heim: Frelsi og mannréttindi,“ líkt og formaður Frjálshyggjufélagsins orðar það. Hann bætir við:
„Með því að fella niður þvingunarkröfur um sóttkví og einangrun getur Ísland skorið sig úr sem þjóð sem virðir mannréttindi og býður alla velkomna. Slíkt boð mundi strax vekja athygli um allan heim, enda er frelsi og öryggið sem mannréttindum fylgir afar dýrmætt í dag. Frelsið er þannig markaðsvara sem selur sig sjálf.“
Jóhannes telur enga hættu á ferðum eða sýktir einstaklingar kæmu til landsins. Rökin segir hann vera að sýkt fólk ferðist síður. Hann tekur þó ekki fram að langstærsti hópurinn sem smitaður er af kórónaveirunni er einkennalaus. Þá segir Jóhannes að markaðurinn finni fljótt lausnir sem henti ástandinu. Við þetta bætir Jóhannes að öryggi ferðamanna sem sýktust myndu aukast við það að opna landið og smithættan minnka.
„ ... ef þeir gætu óhræddir nálgast læknishjálp, án þess að eiga á hættu að vera sviptir frelsinu,“ segir Jóhannes í Morgunblaðinu.