Íbúar fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi kusu nýverið að sameina sveitarfélögin. Niðurstaðan var afgerandi og þátttaka góð. Þetta er ánægjulegt fyrir margra hluta sakir.
Íbúarnir geta nú sameinast um betri þjónustu og rödd þeirra verður sterkari. Þeir fagna sem vilja sjá landsbyggðina blómstra með sterkari sjálfbærari sveitarfélögum. Þau gegna lykilhlutverki með því að bjóða annan búsetuvalkost en Reykjavík eða jafnvel höfuðborgarsvæðið frá Hvítá í Borgarfirði til Hvítár í Árnessýslu.
Það þarf líka að efla sveitarstjórnarstigið sem mikilvægan hluta íslensks lýðræðis og samfélagsþátttöku. Með öflugum sveitarfélögum getum við fært fleiri verkefni frá ríkinu þannig að þjónusta við fólk sé nálæg. Sú hugmyndafræði sem liggur að baki sameiningunni á Austfjörðum lýtur að sameiningu stjórnsýslu en ekki byggða. Þrátt fyrir aukna samvinnu byggðanna þurfa séreinkennin ekki að tapast þótt breytt sé um nafn sveitarfélagsins. Áfram halda Seyðisfjörður og Egilsstaðir sínum sérkennum og sjálfsmynd. „Heimastjórnum“ verður komið á sem munu auka áhrif heimamanna á þjónustu í nærumhverfi sínu.
Með þetta í huga er sérstakt að ekkert heyrist af hugmyndum um sameiningu sveitarfélaganna við Eyjafjörð. Byggð sem þarf nauðsynlega að efla samkennd og samstöðu íbúa til að gæta hagsmuna sinna betur.
Í Sóknaráætlun Norðurlands eystra til ársins 2024 er sagt að íbúar ættu að hætta „að beita gömlum meðulum í heimi sem breytist hratt“. Jafnframt verði að sporna við því „að gera sömu hlutina á tveimur stöðum“. Samt er sameining sveitarfélaganna ekki nefnd á nafn.
Sameinaður Eyjafjörður auðveldar mönnum að standa saman að uppbyggingu atvinnu og þjónustu enda er svæðið eitt í þeim skilningi. Sameinað getur svæðið staðið vörð um eigin hagsmuni og síður verður gengið fram hjá því.
Sameinað er Eyjafjarðarsvæðið og Akureyri sterkari búsetuvalkostur fyrir landsmenn. Ein Eyjafjarðarbyggð þýðir að hægt er að taka rökréttari ákvarðanir í skipulagsmálum sérstaklega þegar stærsta sveitarfélagið, Akureyri, skortir meira land.
Aukin hagkvæmni í stjórnsýslu leiðir til sparnaðar sem má nýta til betri þjónustu og uppbyggingar innviða líkt og reyndin hefur verið í öðrum sameiningum.
Og þótt það sé í raun aukaatriði, liðkar Jöfnunarsjóður sveitarfélaga til fyrir sameiningum sveitarfélaga. Það þýðir að á næstu sjö árum rynnu alls 1.649 milljónir króna til Eyjafjarðar til uppbyggingar, ásamt stuðningi við undirbúning sameiningar, kynningarmál og framkvæmd sameiningar. Að auki býður sjóðurinn sérstök framlög komi til skerðingar á jöfnunarframlögum í fjögur ár eftir sameiningu.
Koma svo, Eyfirðingar!