Sævar Helgi nefnir hluti sem eru skaðlegri börnum en bólusetningar

Sævar Helgi Bragason, oft kallaður Stjörnu-Sævar, segir að fólk megi hafa áhyggjur af ýmsu öðru en bólusetningum barna.

Sævar skrifar færslu á Facebook sem vakið hefur talsverða athygli en í henni nefnir hann nokkra hluti sem eru skaðlegri börnum en bólusetningar.

„Sé að sumir eru farnir að hafa áhyggjur af bólusetningum barna. Fagna því þegar fólk hefur hagsmuni barna í fyrirrúmi. Við ættum að gera meira af því. Hér eru því nokkrir hlutir sem geta haft eða hafa mun meiri líkamleg og andleg áhrif á börn (og fullorðna) en bólusetningar,“ segir Sævar Helgi og telur upp eftirfarandi atriði:


Bílar

Svifryksmengun

Of lítil hreyfing

Ónógur svefn

Biðlistar í heilbrigðiskerfinu

Skortur á félagslífi

Skortur á samverustundum með foreldrum og systkinum

Skortur á ást og umhyggju

Skortur á samkennd

Lélegt mataræði - Of lítil neysla grænmetis

Lélegt mataræði - Of mikil neysla dýraafurða

Samfélagsmiðlar

Skortur á vísinda- og tölfræðilæsi

Umhverfis- og loftslagsbreytingar

Hann segir að lokum að bólusetningar geri okkur og aðra sannarlega öruggari í samfélagi þar sem sumir geta, af einhverjum ástæðum, ekki þegið þetta mesta afrek læknavísindanna.