Piparmyntu pavlova með hvítum súkkulaðirjóma með jólabragði

Í tilefni þess að jólin nálgast óðum og aðventan er brostin á, var tvíeykið, Viktor

Örn Andrésson matreiðslumeistari og landsliðskokkur og Berglind Guðmundsdóttir matar- og sælkerabloggari hjá Gulur, rauður, grænn og salt fengið til leika listir sínar saman í eldhúsinu og töfra fram þriggja rétta hátíðarkvöldverð í þættinum Matur og Heimili á Hringbraut. Það er sannkölluð jólastemningu yfir hátíðarkvöldverðinum sem þau framreiddu að hjartans list. Hér deilir Berglind með áhorfendum og lesendum Hringbrautar uppskriftinni af Piparmyntu pavlovunni með hvítum súkkulaðirjóma sem bráðnar í munni og töfrar gestina upp úr skónum.

Piparmyntan minnir á jólin

Aðspurð veit Berglind fátt skemmtilegra en að bregða á leik í eldhúsinu og elskar að baka og útbúa ljúffenga eftirrétti sem bráðna í munni. Hún er þekkt fyrir bakstur sinn og ástríðuna í eldhúsinu. Berglind tók við keflinu þegar kom að eftirréttinum. „Pavlovur eru áttunda undur veraldar, ég get svo svarið það. Einu sinni byrjað og þú getur ekki hætt. Pavlova er hvít og falleg eins og vetrarsnjórinn og það er eitthvað við piparmyntu sem minnir mann á jólin. Því finnst mér þessi uppskrift vel við hæfi. Það besta við þessa uppskrift, fyrir utan bragðið, er að það má gera hana kvöldinu áður. Á aðfangadag er svo hægt að setja hana saman í rólegheitunum. Það er eftirréttur að mínu skapi,“ segir Berglind sem er mjög slök þegar kemur að matarhefðum um jólin og leggur meiri áherslu á að fólkið hennar og hún hafi það huggulegt um jólin.

Hægt er að sjá þáttinn hér: Matur & Heimili

M&H Berglind Guðmundsdóttir.jpg

Berglind Guðmundsdóttir köku- og matarbloggari og ástríðubakari.

Piparmyntu pavlova með hvítum súkkulaðirjóma

Botnar (3 stykki í þremur stærðum)
150 g eggjahvítur, geymdar við stofuhita
300 g flórsykur

1 tsk. piparmyntudropar

Hvít súkkulaðimús
500 ml rjómi
300 g hvítir súkkulaðidropar

Skraut
1 poki bismark brjóstsykur
50 g suðusúkkulaði

Hindber eða önnu ber að eigin vali. Það má að sjálfsögðu skreyta eftir smekk með því sem ykkur langar til.

Pavlovu marengsbotnarnir

Setjið eggjahvíturnar í hreina og þurra hrærivélaskál. Hrærið á hæstu stillingu í 3-4 mínútur. Bætið flórsykri saman við smátt og smátt og hrærið áfram. Þegar allur flórsykurinn er kominn saman við hrærið í 5 mínútur til viðbótar. Bætið piparmyntudropunum saman og á lægstu stillinguna. Hrærið í 30 sekúndur til viðbótar.
Setjið smjörpappír á ofnplötur og gerið botnana þrjá. Setjið þrjár stórar skeiðar af marengsum fyrir neðsta botninn, tvær skeiðar fyrir miðju botninn og eina fyrir þá efstu. Deilið afganginum á milli og mótið marengsinn með sleikju. Látið inn í 100°C heitan ofn í 1 klukkustund og 30 mínútur. Opnið ekki ofninn á meðan marengsinn er að bakast. Þegar tíminn er liðinn slökkvið á ofninum og látið marengsinn vera í ofninum þar til ofninn er orðinn kaldur. Þetta er gott að gera kvöldinu áður.

Hvít súkkulaðimús

Setjið súkkulaðidropana í skál. Hitið rjómann að suðu í potti við vægan hita en látið ekki sjóða. Hellið yfir súkkulaðið og látið standa í 5-10 mínútur eða þar til súkkulaðið er bráðið. Blandið vel saman, setjið filmu yfir skálina og látið í ísskáp í að minnsta kosti 2 klst eða yfir nótt. Takið þá úr kæli og þeytið í hrærivél á hæðstu stillingu þar til rjóminn er þeyttur.

Setjið stærsta botninn á kökudisk. Látið súkkulaðirjóma þar yfir. Endurtakið með hina botnana. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og kælið lítilega. Skreytið með muldum brjóstsykri, berjum, súkkulaðisósu. Svo er voðalega flott að sigta flórsykur yfir kökuna.

Njótið vel og gleðileg jól.

*Allt hráefnið fæst í Bónus.