Dagur 250 og dagur 38 í einangrun.
Þeir eru byrjaðir að skjóta fólk í SuperDino.
Ég rölti í SuperDino í gær til að kaupa eitthvað í matinn og öryggisvörðurinn tók upp laserhitabyssu, miðaði á höfuð mér og tók í gikkinn. Ég lék leikinn af sömu alvöru, greip um höfuðið og þóttist falla niður á gólfið en vantaði leikarahæfileikana og fór að hlæja. Konan á kassanum hló líka sem og nærstaddir viðskiptavinir.
Öryggisverðinum var hinsvegar ekki skemmt, setti upp fýlusvip og skipaði mér að fá mér nýja hanska. Það var víst dagur plasthanskanna í gær, en ég hafði verið með latexhanska.
Þegar ég rogaðist út úr búðinni með innkaupin gaf ég öryggisverðinum honnör og hann svaraði í sömu mynt svo hann er greinilega búinn að fyrirgefa mér athæfið. Ég komst svo alla leið heim í Ástarhreiðrið með innkaupin án frekari skakkafalla.
Annars finnst mér þetta nýjasta sjónarspil að mæla hitann í fólki með laserbyssu dálítið kjánalegt í ljósi þess að vart hefur nokkur manneskja mælst með kórónuveiru í bænum í marga daga eða vikur sem er eðlilegt þegar bærinn hefur verið í útgöngubanni síðan 15. mars og helsta vandamálið sem getur hrjáð fólk er hættan á háum hita vegna timburmanna sem hafa stóraukist þessar fimm vikur.
Öryggisvörðurinn hefði hinsvegar alveg mátt virða tveggja metra regluna.