Nú geta súkkulaðiunnendur kitlað bragðlaukana og fundið keiminn af jólunum

Nú geta súkkulaðiunnendur notið þess að kitla bragðlaukana og fundið keiminn af jólunum í nýju vetrarlínunni frá Omnum. Vetr­ar­lína súkkulaðigerðarinnar Omnom er kom­ út á dögunum og og líkt og fyrri ár sæk­ir hún inn­blást­ur sinn í ís­lensk­ar jóla­hefðir sem ylja lands­mönn­um um hjartaræt­ur með minn­ing­um liðinna jóla.

Omnom sæk­ir inn­blást­ur í mat­ar­hefðir, bragðtóna og venj­ur sem hringja inn íslensku jól­in. Líkt og fyrir ár inniheldur vetr­ar­lín­an þrjú súkkuaðistykki og kem­ur einnig í fal­legri gjafa­öskju en umbúðirn­ar voru hannaðar í sam­starfi við lista­kon­una Söru Riel.

Færri fengu en vildu í fyrra þar sem vetrarlínan seldist hratt upp og eru lands­menn hvatt­ir til að næla sér í vetr­arsúkkulaði Omnom sem fyrst. Gjafaöskjurnar eru mikið augnakonfekt og vekja eftirtekt fyrir fallegar og smekklegar umbúðir sem ættu að sóma sér vel í jólapakka til allra súkkulaðiunnenda og fagurkera.

Omnom vetraraskjan 2020.jpg

Dark Nibs + Raspberries

Marg­slungn­ir, fín­gerðir tón­ar og fislétt rauðberja­bragðið ger­ir Madaga­sk­ar 66% súkkulaðið að einu stóru ástar­ævin­týri fyr­ir bragðlauk­ana. Hátíðlega fag­urrauð hind­ber með sinn sér­staka sæta keim, pöruð með væn­legu dassi af kakónibb­um, full­komna pakk­ann. Nú er hátíð í bæ.

Dark_nibs_Raspberry_2019_650x.jpg

Milk + Cookies

Það er ómögu­legt að hugsa til jóla án þess að upp komi í hug­ann minn­ing um pip­ar­kök­ur og glas af ís­kaldri mjólk. Súkkulaðimeist­ar­ar Omnom vildu fanga þessa minn­ingu og leituðu því til Brauðs & Co til að aðstoða við að búa til hina full­komnu krydduðu smá­köku.

Milk_Cookies_2019_650x.jpg

Grunn­ur­inn var unn­inn úr af­gangs­möndl­um úr fram­leiðslunni hjá Omnom, trölla­höfr­um og ríku­legu magni af engi­fer og kanil.

Spiced White + Cara­mel

App­el­sín­ur og malt. Malt og app­el­sín. Kryddað, maltað hvítt súkkulaði með app­el­sínu­berki, kanil og stökkri kara­mellu. Flest­ir Íslend­ing­ar halda fast í þessa ríku­legu hefð af hátíðlegri bragðupp­lif­un, sem er engri lík. Súkkulaði sem er sann­kallaður óður okk­ar til jól­anna.

Spiced_White_Caramel_2019_650x.jpg

Myndir frá súkkulaðigerðinni Omnom