Nostalgíu risarækjukokteill eins og hann gerist bestur

Rækjukokteillinn klassíski er algjör nostalgía og á vel við sem forréttur með helgarmatnum. Rækjukokteillinn er forréttur sem naut mikillar vinsælda á sjöunda og áttunda áratugnum í Norður-Evrópu og Bandaríkjunum og var fastur liður á matseðlum flestra veitingahúsa. Í Bandaríkjunum er „shrimp cocktail“ gerður með risarækjum sem bornar eru fram með rauðri „cocktail“-sósu sem yfirleitt samanstendur af chili-sósu, tabasco, worchester og smá sítrónu.

Evrópski rækjukokteillinn er aftur á móti upprunalega frá Bretlandi og þar eru notaðar rækjur (prawns) eins og við þekkjum þær sem bornar eru fram með sósu sem heitir „Marie Rose“ en sú sósa er einnig stundum kölluð „kokteilsósa“. Samkvæmt heimildum um sögu sósunnar er breska matarkonan Fanny Cradock, yfirleitt talinn höfundur þessarar sósu. Hún naut mikilla vinsælda í matargerð á fyrstu áratugunum eftir seinni heimsstyrjöldina. Gaman er að geta þess að Marie Rose sósan er náskyld Þúsundeyjasósunni.

Hér er komin uppskrift af klassíska rækjukokteilnum með risarækjum sem bráðnar í munni og risarækjurnar er hægt að fá eldaðar í Bónus, tilbúnar til framreiðslu eftir að hafa afþýdd þær. Með rækjukokteilnum er sér útgáfa af Marie Rose sósunni en það er í góðu lagi að vera með Þúsundeyjasósuna eða jafnvel Limesósu.

M&H Nostalgíu rækjukokteill með risarækjum 2

Risarækjukokteill

Fyrir 4-6

450 g eldaðar risarækjur (fást frosnar í Bónus á Bónusverði), afþýddar

4 dl Maria Rosa sósa/Þúsundeyjasósa (sjá uppskrift fyrir neðan)

1-2 stk sítrónur

½ agúrka

1 stk salatblaðhaus eða salat að eigin vali

handfylli af steinselju eða sprettum

1-2 stk ferskt smátt saxað chili, má sleppa

Maria Rose sósan

2 dl majónes að eigin vali

1-2 msk. sýrður rjómi að eigin vali

1,5 dl Hunts tómatsósa

væn skvetta (eða tvær) af Worchester-sósu

skvetta af Tabasco

sítrónusafi eftir smekk

Byrjið á því að píska saman majónes, sýrðan rjóma og tómatsósu. Bætið Worchester-sósu og Tabasco saman við. Kreystið smá sítrónusafa út í og pískið vel saman. Geymið í kæli. Setjið síðan rækjukokteilinn saman. Það er gaman að bera hann fram í kokteilglasi en auðvitað má líka hafa réttinn á diski.

Fyrst eru salatlauf/blöð sett í botninn á glasinu. Það er hægt að nota lambhagasalat, salatblöndu frá VAXA, romaine eða jafnvel gróf saxað jöklasalat. Þá skammtur af risarækjum settar ofan í og á barminn á kokteilglasinu ásamt sítrónu- og gúrkusneiðum, sósan yfir og loks skreytt með smátt söxuðu chili, sprettum og/eða steinselju.

M&H risarækjur kokteill 3

Síðan má líka raða risarækjunum fallega á barminn á hanastélsglösum og setja Marie Rosa sósuna ofan í glösin og hafa síðan stóra og myndarlega salat skál til hliðar þar sem hver og einn getur valið það sem honum þykir best með risarækjunum. Það er bara að velja allt sem hugurinn girnist og hafa fjölbreytni í litum. Gaman er að raða þessu fallega upp og gleðja augu og munn, er svo mikið augnakonfekt að vera með fjölbreytni. Njótið vel og gleðilega helgi.

M&H Risarækjur.jpg

Hér má sjá pokann með risarækjunum sem fást í Bónus fulleldaðar og án hala.

M&H risarækjur kokteill 3

Hægt er að leika sér með meðlæti af grænmeti og dressingar eftir smekk hvers og eins.

M&H Risarækjur í kokteilinn .jpg

Risarækjurnar eru svo fallegar fyrir augað og bragðið eftir því.