Nú eru margir að taka próf og að mörgu að huga varðandi heilsu og vellíðan.
1. svefn:
Góður svefn er mjög mikilvægur, sérstaklega í prófatörnum. Fátt skiptir í raun meira máli en að fá nægan svefn. Margir reyna að vaka heilu næturnar og lesa, en yfirleitt skilar það engu nema þreytu og lélegri einbeitingu. Rannsóknir sýna að flestir þurfa 7-8 tíma nætursvefn til að halda fullri orku og þreki.
2. jákvætt hugarfar:
Það er mikilvægt að halda gleðinni í prófunum og hugsa jákvætt. Það skilar engu að draga sig niður með neikvæðum hugsunum og niðurrifi. Á þessum tímapunkti er mikilvægt að klappa sér á bakið og koma auga á það sem vel er gert. Miklu skiptir að átta sig á að enginn getur gert meira en sitt besta.
3. mátuleg hreyfing:
Það er mjög jákvætt hressa sig við með skemmtilegri líkamsrækt og mikilvægt að halda sínu striki hvað varðar hreyfingu. Fyrir flesta eru gönguferðir, sund, jóga og allskonar leikfimi af hinu góða og ferskt loft endurnærir hugann.
4. hvíld og slökun:
Það er engin leið að sitja endalaust við lestur og halda einbeitingunni. Fæstir ráða við meira en 90 mínútna lotur. Þá er mál að gera hlé, standa upp og liðka sig, fá sér smá í gogginn eða rölta út og ná sér í súrefnisskammt. Markviss slökun af einhverju tagi getur endurnýjað orkuna á met tíma. Það er hægt að fá sniðuga geisladiska með slökunartónlist eða hugleiðsluæfingum, sem snarvirka. Talið er að 10 mínútna djúpslökun geti komið í stað klukkustundar svefns.
NÆRING
Margir detta í mikla óhollustu í prófunum. Það getur verið vegna tímaskorts, af gömlum vana eða hreinlega líffræðilegum ástæðum. Þegar líkaminn er undir álagi þá kallar hann á sykur. Oftast er bullið í mataræðinu þó einhverskonar blanda af þessu öllu saman. Það er þó ekkert tímafrekara að fá sér hollan mat en óhollan. Það er bara um að gera að skipuleggja sig aðeins og byrgja sig upp af allskonar gæðafæðu áður en törnin hefst.
Nokkrar góðar hugmyndir:
-Það er gott að eiga nóg af eggjum, fljótlegt að grípa í þau og auðvelt að matbúa.
-Tilbúin grænmetisbuff og heilsuréttir fást í öllum stórmörkuðum. Skellið þeim í frystinn og notið eftir hendinni.
-Gróft pasta, t.d. úr spelti eða heilhveiti tekur 8 mínútur að sjóða og það inniheldur mikið af góðri næringu, miklu meira en hvíta pastað.
-Gæða próteinduft, t.d. mysuprótein, hrísgrjónaprótein eða hampprótein er hægt að nota í orkudrykki. Það tekur stuttan tíma að blanda slíkan drykk.
-Hnetur, möndlur og fræ eru frábært nasl og gott að nota í orkudrykki. Chia fræ eru algjör snilld og eru góð í grauta og boost.
-Passið að eiga nóg af grænmeti og ávöxtum. Spínat og avocado eru snilld í grænar drykkjabombur. Það er nauðsyn að eiga ferska ávexti ef sykurlöngun lætur á sér kræla.
-Hafragrautur er góður kostur og um að gera að skella í hann kanel og chia fræjum.
-Það eru til allskonar orkustykki, sum holl en önnur ekki. Varið ykkur bara á sykurmagninu í þeim og fjölda aukaefna, passið að lesa vel innihaldslýsingar.
-Bolla og pakkasúpur fást án óæskilegra aukaefna í Heilsuhúsinu
Ef lesturinn fer fram á bókasafni eða á lesstofu þá er um að gera að hafa með sér nesti. Það er hægt að hræra sér orkudrykki, skella þeim í hitabrúsa með smá klaka og þá helst drykkurinn kaldur fram eftir degi. Útbúið ykkur pastasalat úr grófu pasta, samlokur úr gæðabrauði og ommelettur (smakkast vel kaldar). Hafið með ykkur ávexti og hnetur, fræ eða möndlur. Hinar ýmsu gerðir af hnetum og möndlum eru ofurfæða og sérstaklega í próftörnum. Þær eru stútfullar af góðum olíum sem eru nauðsynlegar fyrir heilabúið og amínósýrum sem eru mikilvægar allri heilsu.
Haldið sykurneyslu í lágmarki sem og kaffidrykkju. Passið að drekka nóg vatn eða jurtate og grænt te virkar hressandi og upplífgandi.
Góð bætiefni geta svo gefið þér þennan auka kraft sem þú þarft til að klára veturinn.
- Spektro fjölvítamín frá Solaray sér til þess að líkaminn fái þau vítamín og steinefni sem hann þarfnast,sérstaklega fyrir heila- og taugakerfi.
- Efalex olían er súpergóð fyrir einbeitinguna og inniheldur lífsnauðsynlegar fitusýrur
-D 2000 IU vítamín frá Gula miðanum er algjör nauðsyn í skammdeginu, en einnig undir vetrarlok
-B Complex með C vítamíni frá Terranova styrkir taugakerfið og eykur einbeitingu og úthald
-BioCitrate Magnesíum frá Solaray virkar róandi og slakandi og gott að taka fyrir svefninn
-Burnirót (arctic root) getur virkað hressandi og kætandi og vinnur gegn streitu og einbeitingarskorti
-Einnig er mjög sniðugt að taka meltingargerla (acidophilus), til dæmis Multidophilus 12 frá Solaray, þar sem streita hefur slæm áhrif á meltinguna.
Gangi ykkur vel í lestrinum !