Hátt í hundrað manns hafa tjáð sig undir frétt RÚV um Gylfa Þór Þorsteinsson, umsjónarmann farsótta, en hann reyndist mikill örlagavaldur í lífi Alice D'Souza, ástralskrar konu sem missti unnustu sinni fyrstu Covid- bylgunni.
Alice greinir frá því að fréttinni að Gylfi tók við henni á sóttvarnahótelinu og sýndi ómetanlegan stuðning.
„Ég veit ekki hvernig ég hefði komist í gegnum þetta án hans,“ segir Alice. Unnusti Alice, David Lowe, var fyrstu maðurinn til að láta lífið vegna veirunnar á Íslandi.
Hann var um fertugt og var staddur hér á Íslandi í trúlofunarferð með Alice. Hann smitaðist alvarlega, veiktist og lést á skömmum tíma.
Hjónin voru á Mývatni þegar David veiktist skyndilega og flutti sjúkrabíll hann á Húsavík. Það stóð til að flytja hann til Akureyrar eða Reykjavíkur en áður en það gat hafist fór hann í hjartastopp. Endurlífgunartilraunir voru gerðar en þær báru ekki árangur.
Alice beið á sjúkrahúsinu í 70 mínútur áður en Ásgeir Böðvarsson yfirlæknir á Húsavík, kom til hennar og tilkynnti henni að David væri látinn.
Alice reyndist vera með veiruna líka og var hringt í Gylfa Þór sem þurfti að koma á fót sóttkvíarhóteli fyrir hana. „Hún vissi ekki hvort hún myndi lifa eða deyja,“ segir Gylfi.
Alice gleymir því aldrei þegar Gylfi tók á móti henni á hótelinu, gekk til hennar og tók utan um hana. „Það var í fyrsta skipti frá því að David dó sem einhver snerti mig líkamlega og sýndi mér stuðning. Mér fannst beinlínis að ég velti byrðunum yfir á Gylfa og veit ekki hvernig ég hefði komist í gegnum þetta án hans.“
Gylfi og Alice mynduðu sterk tengsl á þeim tíma sem Alice dvaldi á hótelinu. Þau ræddu um sorgina sem Gylfi hefur líka fengið að reyna.
Hann tók ekki annað í mál en að Alice fengi að kveðja David í hinsta sinn og gafst ekki upp fyrr en hún fékk leyfi til þess.
Í líkhúsið fóru þau saman og Alice fékk að eiga síðustu stund með unnusta sínum og halda í hönd hans. „Þetta var mjög falleg stund og greinilegt að á milli þeirra ríkti mikil ást,“ segir Gylfi.
Frásögn Alice hefur kveikt í netheimum á Íslandi en Gylfi Þór fékk ekki fálkaorðuna líkt og aðrir sem tóku þungann af faraldrinum.
„Eg skyldi aldrei af hverju Gylfi fékk ekki Fálkaorðuna eins og hinir sem voru með hitann og þungan í Covid-faraldrinum,“ skrifar Elín Geira Óladóttir og fær hátt í hundrað „likes“ fyrir.
Sólveig Sigríður Magnúsdóttir tekur undir með Elínu. „Ég var einmitt að tala um það að það er kominn tími til að hann fái orðuveitingu fyrir manngæsku þessi einstaki öðlingur.“
Dóttir Gylfa, Guðmunda Íris Gylfadóttir, lætur sig ekki vanta og segir: „Það sem ég er stolt af honum pabba mínum“
„Algjörlega sammála. Hef dáðst að þessum manni frá því að hann fór að birtast í fjölmiðlum. Yfirvegaður, hógvær og það skín af honum kærleikur,“ skrifar Ágústa Hrefna Lárusdóttir.
„Þú ert alveg dásamlegur maður. Þú bjargaðir bara þessari fallegu sorgmæddu konu Alice,“ segir Stefanía Stefánsdóttir.
„Gylfi er einstakur maður og sýndi það svo sannarlega í sínu starfi í Covid. Það var sannur heiður að hafa haft hann sem yfirmann í Sóttvarnarhúsinu. Takk Gylfi,“ segir Erna Þórarinsdóttir.
Svona mætti lengi telja og rignir lofum yfir Gylfa í þræðinum.