Jón Kjartan Ágústsson, svæðisskipulagsstjóri höfuðborgarsvæðisins, birtir heldur betur óhugnanlegt myndband á Twitter en þar sýnir hann hvernig hraði getur drepið í umferðinni.
Myndbandið sýnir áhrifin af árekstri ef jeppi eða jepplingur fær vörubíl á sig. Reykjavíkurborg og önnur sveitarfélög hafa rætt það að lækka hámarkshraða niður í 30km innan borgar og bæjar.
Sjón er sögu ríkari.
Skiptu bílnum fyrir barn og útskýrðu af hverju hámarkshraði í þéttbýli ætti ekki að vera 30 km. 💀 https://t.co/CPa9ebpAKh
— Jon K. Agustsson (@AgustssonJon) March 15, 2023