Mynd dagsins: Himbrimi ættleiðir andarunga

Mynd dagsins, eða öllu heldur myndir dagsins sýnir himbrima synda með andarunga á bakinu.

Pétur Alan Guðmundsson, fuglaáhugamaður og kaupmaður í Melabúðinni er ljósmyndarinn sem tók myndina. Hann gefur Hringbraut góðfúslegt leyfi til að birta þær.

Pétur segir himbrimaparið hafa tekið andarungann í fóstur. Þau hafi borið hann á bakinu, kallað eftir honum og varið hann sem sinn eigin.

Mynd: Pétur Alan Guðmundsson
Mynd: Pétur Alan Guðmundsson

Fleiri fréttir