Samkvæmt Veðurstofunni má búast við norðlægri átt 3- 13 metrar á sekúndu í dag og hvössum vindstrengjum suðaustanlands. Víða verður léttskýjað en él austanlands með snjókomu seint í kvöld.
Á morgun verður austlægari átt. Él verða norðan til fyrripartinn en það mun einnig snjóa suðvestantil annað kvöld.
Frost verður á bilinu 3 til 16 stig, kaldast í innsveitum norðaustanlands en sums staðar frostlaust syðst í dag. Mildara veður er í kortunum á morgun.
Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að í dag verður r áþekkt veður og verið hefur nema að hámarkshiti dagsins getur sums staðar komist yfir frostmark, einkum sunnan til á landinu.
Útlit er fyrir að úrkomubakki muni leggjast yfir vestanvert landið seint á morgun og getur snjóað staðbundið allmikið.
Samkvæmt veðurfræðing eru líkur eá að þessi snjókomubakki verði viðloðandi vestanvert landið fram eftir laugardegi, en færist síðan yfir á austur hluta landsins. „Þannig að það lítur út fyrir að vetur konungur minni einnig á sig um vestanvert landið eftir langan þurrviðriskafla,“ segir á vef Veðurstofunnar.