Alexandra Briem, forseti borgarstjórnar segir í færslu á Facebook síðu sinni að það sé hreinlega met í óheiðarleika að Sjálfstæðisflokkurinn sé að kynna það sem kosningaáherslu að bjóða börnum frá tólf mánaða aldri leikskólapláss.
„Þegar það er nýlega búið að tilkynna að með þeim plássum sem klárast á árinu, þá verði öllum börnum boðið pláss frá 12 mánaða aldri núna í haust?,“ segir Alexandra í færslunni og telur þar með að Sjálfstæðisflokkurinn sé að stela árangri af uppbyggingu síðari ára.
„Vá, segi ég nú bara. Þetta er einhvers konar met í óheiðarleika og tækifærismennsku,“ segir hún að lokum.
Fólk hefur verið duglegt að deila sinni skoðun um málið í athugasemdum.
Ormur Karlsson gagnrýndi meirihlutann í borginni og segir: „Ég held að meirihlutinn ætti að tala sem minnst um börn og leikskóla í Reykjavík. Þvílíka djöfuls ruglið,“ og bætir við að hann telji að meirihlutinn hafi verið með allt lóðrétt niðrum sig síðustu 4 ár.
Jack Hrafnkell Daníelsson sagði: „Héddna? Hvenær hefur þú rekist á heiðarlegan sjálfstæðismann?“
Hjörtur Hjartar sagði þetta: „Flokkurinn á fyrra metið líka,“ og gefur þar með til kynna að Sjálfstæðisflokkurinn eigi einnig fyrra metið um óheiðarleika.
Færsluna í heild má sjá hér fyrir neðan.