Matcha orkukúlur virka vel

Á vef Heilsuhússins er að finna margt fróðlegt.  Hér er ein góð uppskrift sem er vel þess virði að prófa. 

 

Matcha te er ótrúlega áhrifaríkt. Það hefur mikla andoxandi eiginleika, hreinsandi & orkugefandi. 

Hér eru Matcha orkukúlur sem þú verður að prófa - einfaldar eru þær !

 
Uppskrift: 

 

1/2 bolli lífrænar döðlur - fjarlægið steina

 

1/2 bolli möndlusmjör eða möndlur hakkaðar

 

2,5 msk. hrátt kakó

 

1 msk hunang eða hlynsýróp

 

1 tsk lífrænt vanilluduft

 

salt á hnífsoddi

 

1 msk. kakónibbur (má sleppa)

 

Matcha te-duft til að velta uppúr 

 

Aðferð:

 

Takið öll innihaldsefni nema Matcha teduftið og blandið vel í matvinnsluvél eða með töfrasprota. Þegar deigið er orðið silkimjúkt mótið 12 liltar kúlur og stráið Matcha te-duftinu yfir. 

 

Frystið að lágmarki í 30 mín.