Ljúffengur Ris a la mande töfraður fram á augabragði

Sú hefð ríkir hjá mörgum að borða hrísgrjónagraut á jólunum eða grautinn sem ber hið fallega heiti Ris a la mande. Hefðinni fylgir jafnframt að fela eina möndlu í einni skál matargesta. Grauturinn á rætur sínar að rekja úr danskri matreiðslubók Frk. Jensens frá árinu 1901. Margir hafa haldið að grauturinn sé franskur en svo er ekki. Aftur á móti er mandlan sem er í réttinum komin af franskri hefð. Í Frakklandi var sá siður að sá sem fékk möndluna í grautinn sinn fékk leyfi til að vera kóngur í einn dag og rétt til að stjórna þeim sem hann vildi. Í Danavaldi var sá háttur hafður á að sá sem hlaut möndluna mátti velja hvern hann myndi vilja kyssa. Í dag er hefðin sú, alla vega hér á landi, að sá sem fær möndluna fær möndlugjöf sem hægt er að njóta með restinni af fjölskyldunni á jólunum. Mikil eftirvænting ríkir gjarnan meðan beðið eftir því að mandlan birtist í skál einhvers matargesta.

Ris a la mande 1.jpg

Ris a la mande borinn fram í fallegum skálum frá Bako Ísberg á bakka skreytum piparkökum og jólagreni.

Í Bónus er hægt að fá grjónagrautinn tilbúinn með uppskrift á pakkanum af þessum vinsæla jólarétti. Allt hráefnið fæst í Bónus og hægt er að laga guðdómlega ljúffengan Ris a la mande á augabragði. Hér ljóstrum við upp einfaldri uppskrift sem fylgir á pakkanum og allir ráða við og hægt er að töfra fram Ris a la mande og bera fram á fallegan máta.

Ris a la mande

1 poki grjónagrautur frá Bónus

1 peli rjómi

60 g sykur

4 tsk vanilludropar

100 hakkaðar mönldur eða flögur

Kirsjuberjasósa (hægt að kaupa sultuna gera úr henni sósu með því að bæta við soðnu vatni)

Setjið kaldan grautinn í skál og hrærið sykri og vanilludropum saman við. Þeytið rjómann og blandið honum varlega saman við grautinn. Setjið í fallegar skálar, hellið kirsuberjasósunni yfir, eftir smekk, og sáldrið möndlum yfir. Má bæði nota hakkaðar möndlur eða flögur, hvorutveggja fallegt. Sumir vilja mikla kirsuberjasósu meðan aðrir vilja litla svo hver og einn velur hversu mikið af sósunni er hellt yfir. Muna að fela eina möndlu í einni skálinni áður en skreytt er. Við byrjum ávallt að borða með augunum og svo munninum og því er vert að bera allan mat fallegan fram og skreyta.

Njótið aðventunnar og gleðileg jól.

Ris a la mande - Bónus 3.jpg

Allt hráefnið fæst í Bónus og kærkomið að fá grjónagrautinn tilbúinn.