Ljóstrar upp matseðlinum á hefðbundnum degi

Eva Dögg Sigurgeirsdóttir markaðsráðgjafi, ástríðukokkur, móðir og eiginkona með meiru verður hjá Sjöfn Þórðar í þættinum Matur & Heimili á mánudagskvöld:

Eva Dögg Sigurgeirsdóttir er mikill ástríðukokkur og veit fátt skemmtilegra þessa dagana en að setja saman ljúffenga og holla máltíð. Sjöfn Þórðar heimsækir Evu í eldhúsið þar sem Eva sviptir hulunni af matseðli á hefðbundum degi hjá fjölskyldu hennar. „Ég byrja ávallt daginn á rauðrófusafa og mér finnst líka skipta máli að bera hlutina fallega fram, við byrjum alltaf á því að drekka og borða með augunum. Ég ber því safa dagsins fram í fallegu glasi og nýt þess að hefja daginn með þessum ljúffenga drykk og á mína gæðastund.“

M&H Eva Dögg Sigurgeirsdóttir04.jpg

Aðspurð segir Eva að hún og maðurinn hennar hafi breytt mataræðinu í haust eftir erfiða og fordæmalausa tíma og leggi nú meiri áherslu á að borða meira af grænmeti og léttmeti. „Við erum stór fjölskylda á breiðu aldursbili og gullkrullur mínar, synir okkar, voru ekki alltof hrifnir í fyrstu þegar salat var orðið stór hluti af máltíðinni. Þeir voru því stundum að borða pizzur í staðinn og kannski of oft. Því tók ég til minna ráða og fór að huga að því að bjóða uppá fjölbreytni í salötunum og toppa með ávöxtum og sjávarfangi eins og risarækjum auk þess skiptir framreiðslan líka miklu máli.“ Að sögn Evu er miklu auðveldara að bjóða yngri kynslóðinni uppá hollustu ef um val er í boði. „Að strákarnir mínir geti valið hvað þeir setji á diskinn sinn skiptir sköpun til að fá þá að smakka,“ segir Eva.

Sjöfn fær að njóta matarupplifunnar í eldhúsinu hjá Evu þar sem bæði auga og munnur fá að njóta sín.

Þátturinn Matur & Heimili er á dagskrá öll mánudagskvöld klukkan 20.30 og er að jafnan ferskur, fjölbreyttur og með persónulegum blæ.