Ljósið í bæjarlæknum

Orkuauðlindir landsins eru í eigu landeigenda. Ríkið er stærsti eigandi en þar eftir koma sveitafélög og aðrir landeigendur svo sem bændur. Flutningskerfi raforku eru í sameign þjóðar En landsmenn sitja ekki við sama borð er kemur að flutningi á raforkunni til síns heima það fer nefnilega eftir því hvar þeir búa. En erum við að fara yfir lækinn til að nálgast vatnið?

Flutningskostnaður raforku

Í landinu eru tvær gjaldskrár á flutningi rafmagns, þ.e. dreifbýlisverð og þéttbýlisverð. Dreifkostnaður raforku hefur hækkað meira í dreifbýli en þéttbýli á undanförnum árum og ljóst er að stöðugt dregur í sundur og núverandi jöfnunargjald er langt frá því að jafna þennan mun. Nú er svo komið að það er u.þ.b. fjórðungi hærra í dreifbýli þrátt fyrir jöfnungjaldið sem var sett á til að jafna dreifikostnað raforku í landinu.

Skýringin á sífellt hækkandi kostnaði á dreifingu raforku er að kaupendum roforku fækkar í dreifbýlinu og fjárfestingaþörf og endurnýjunarþarfir er meiri í dreifbýli en þéttbýli og einnig átaksverkefni eins og þrífösun rafmagns. Þetta leiðir af sér aukinn mun á meðalverðum í þéttbýli og dreifbýli.

Smávirkjanir styrkja dreifikerfi raforku

Smávirkjanir eru skilgreindar svo sem eru minni en 10MW. Þeim hefur fjölgað á undanförnum árum og eru kostir þeirra margir. Þarna flæðir umhverfisvæn orka og bæði mannvirki og náttúrurask eru oft að fullu afturkræfar framkvæmdir. Smávirkjanir tengjast kerfinu um dreifiveitur landsins og styrkja þannig þær flutningsleiðir auk þess þær lækka flutningstöp raforku og lækka rekstarkostnað dreifiveita.

Stefna núverandi stjórnvalda er að styrkja byggð í öllu landinu, jafna aðgengi að þjónustu, jafna tækifæri til atvinnu og stuðla að sjálfbærri þróun byggða um allt land. Þar undir fellur það verkefni að stuðla að aukinni jöfnun orkukostnaðar í dreifbýli og þéttbýli.

Gerð smávirkjana stórmál

Virkjunarkostir fyrir smávirkjanir hér á landi eru margir, sérstaklega á Vestfjörðum, Norðurlandi og fyrir austan eða nánast allstaðar þar sem styrkja þarf dreifikerfið. En skiplags- og leyfismál smávirkjana eru flókin og reglugerðir íþyngjandi. Ferlið frá hugmynd að tenginu er kostnaðarsamt og tímafrekt og langt frá samsvarandi ferli framkvæmda t.d. í landbúnaði þar sem framkvæmdir bæði á landi og mannvirkjum geta kostað umtalsvert rask.

Einfalda þarf kerfið

Ljóst er að smávirkjanir eru ein leið til að styrkja dreifikerfi landsins og lækka kostnað við reksturs þess. Með einföldun leyfis- og skipulagsmála smávirkjana er opnað á leið til að ná niður dreifingakostnaði raforku í dreifbýli og þar með leið að frekari jöfnun á raforkukostnaði og jafnar tækifærin til atvinnu og stuðlar að sjálfbærri þróun byggða um allt land. Já , við þurfum ekki að vaða bæjarlækinn til að nálgast ljósið.