Sögufræga stórhýsið í Neskaupstað, Sigfúsarhús, sem er næst elsta húsið í Norðfirði hefur fengið nýtt hlutverk og búið er að gera það upp með stórglæsilegri útkomu. Hákon Hildibrand frumkvöðull, menningarfrömuður og dragdrottning og eiginmaðurinn hans Hafsteinn Hafsteinsson listamaður og rithöfundur áttu sér lengi þann draum að stofna hinsegin listamannaaðsetur og sameina þar með sín störf og áhugasvið ásamt því að skapa sér heilsárs atvinnu í Neskaupstað. Draumurinn hafði blundað í þeim lengi og varð að loks að veruleika þegar að Sigfúsarhús losnaði. Sjöfn Þórðar heimsækir þá Hákon og Hafstein heim og fær innsýn í þeirra glæsilega híbýli og Hákon sviptir hulunni af leyndardómum herbergjana sem öll eiga sér ákveðin karakter.
Sjöfn Þórðar heimsækir Hákon Hildibrand frumkvöðull og menningarfrömuð og eiginmann hans Hafsteinn Hafsteinsson listamann og rithöfund í Sigfúsarhús, sem þeir kalla Hommahöllina í þættinum Matur og Heimili í kvöld.
Í dag eiga og reka þeir Hákon og Hafsteinn þessa rúmlega 400 fermetra höll, Sigfúsarhúsið sem þeir kalla Hommahöllina. Þar segist Hákon ráða ríkjum ásamt eiginmanninum. „Við keyptum draumahúsið síðasta haust, en Sigfúsarhús var byggt árið 1895 og þurfti algjöra endurnýjun til fyrri glæsileika. Við höfum með hjálp vina og fjölskyldu notað síðastliðinn vetur til að taka húsið í gegn og fært það nær upphaflegu horfi,“ segir Hákon og er virkilega ánægður með útkomuna. Húsið er heimili þeirra hjóna en einnig er þar aðsetur fyrir listamenn. Þangað sækja hinsegin listamenn og aðrir sem vinna með kyn eða hinseginleikann í sínum verkefnum, en þurfa ekki að vera hinsegin sjálfir.
Í húsinu er eitt trylltasta eldhús landsins, stórt og rúmgott, heilir 18 fermetrar sem áður skiptust niður í eldhús og búr hafa verið sameinað í eitt rými. „Okkur hefur lengi dreymt um draumaeldhúsið, grand og stórt með miklu vinnuplássi og karakter. Þegar við keyptum húsið var eldhúsið illa nýtt og lögunin á því skrýtin þar sem gamla búrið var byggt inn í rýmið. Ég elska gömul búr og hélt að ég myndi aldrei geta rifið slíkt út en í þessu tilfelli var það ekki spurning,“ segir Hákon.
Líf og gleði alla daga í Beituskúrnum
Einnig reka þeir veitingastaðinn og barinn Beituskúrinn, sem flokkast undir hommabar og er þekktur fyrir að þar ríki ávallt gleði, glaumur og gaman. Matseðillinn í Beituskúrnum er síbreytilegur og matarmenning er meðal annars „street food“ eða götubitamatur, frá öllum heimsálfum sem fær að njóta sín í fjölbreytileikanum. Hákon býður Sjöfn einni Beituskúrinn þar sem hún fær að njóta þess sem þar er í boði og heyra söguna bak við Beituskúrinn sem er á einstaklega fallegum útsýnisstað á Neskaupsstað í labbfæri frá Hommahöllinni.
Missið ekki af litríkri og skemmtilegri heimsókn Sjafnar til Hákons Hildibrands og Hafsteins í kvöld í þættinum Matur og Heimili á Hringbraut klukkan 19.00 og aftur klukkan 21.00.