„Mér finnst ég hálf skrítinn að vera að leita í Bændablaðinu, en ef þú lest Bændablaðið þá ertu líklega skrítin eins og ég,“ segir í auglýsingu 32 ára Norðlendings í Bændablaðinu.
Smáauglýsingarnar í Bændablaðinu vekja jafnan mikla athygli. Í ágúst síðastliðnum sagði Hringbraut til dæmis frá auglýsingu frá konu sem auglýsti eftir vinnu.
„Konugrey á síðustu metrunum óskar eftir því tímabundið að verða matvinnungur í sveit. Er frekar löt en gæti soðið grjónagraut og sett í þvottavél. Ef gífurlegur áhugi er fyrir hendi má senda mér skilaboð á audvitadjajadingdong@gmail.com.“
Í auglýsingu sem birtist í nýjasta tölublaði Bændablaðsins, sem kom út í gær, segir Norðlendingurinn að hann óski eftir að kynnast konu á aldrinum 22 til 38 ára með vináttu til að byrja með í huga. Hann endar auglýsinguna á þessum orðum: „Eingöngu fallegar konur hafi samband - bestur12345@hotmail.com.“