Bryndís Pétursdóttir leikkona lést í gær, mánudaginn 21. september, tæplega 92 ára að aldri. Greint er frá andláti Bryndísar í Morgunblaðinu í dag.
Eftir nám í Verzlunarskóla Íslands útskrifaðist Bryndís úr Leiklistarskóla Lárusar Pálssonar. Bryndís steig fyrst leikara á svið Þjóðleikhússins árið 1946 sem Guðrún í Nýársnóttinni.
Allan sinn starfsferil, eða til ársins 1998, starfaði hún við Þjóðleikhúsið en auk þess lék hún í nokkrum leikritum fyrir Leikfélag Reykjavíkur og Leikfélag Akureyrar.
Bryndís lék mörg eftirminnileg hlutverk á ferli sínum, til dæmis Sigríði í Pilti og stúlku, Rósalind í Sem yður þóknast, Helgu í Gullna hliðinu og Essí í Er á meðan er. Þá lék hún í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum.
Eiginmaður Bryndísar var Örn Eiríksson loftsiglingafræðingur sem lést árið 1996. Þau eignuðust þrjá syni: Eirík Örn, Pétur og Sigurð.