Lárus Blöndal Guðjónsson eða Lalli töframaður, mætti á útvarpsstöðinaK100 til að ræða um starfið, lífið og nýju töfrasýninguna sína Magicshow í Tjarnarbíói.
Lalli segist alltaf hafa vitað að hann vildi verða töframaður eða nánar tiltekið frá sex ára aldri. Hann fékk fyrsta borgaða launaða giggið 12 ára gamall og hefur síðan stefnt á þessa braut.
Hann ákvað hins vegar að taka skrefið rétt fyrir Covid og gerast eingöngu skemmtikraftur.
„Ég fór bara alla leið, bara það að vera skemmtikraftur og töframaður. Besta ákvörðun lífs míns. Ég gerði þetta meira að segja korter í Covid,“ segir Lalli sem segir tímasetningin hafa verið hrikaleg en samt sem áður frábær.
„Þegar ég lít til baka var hún frábær. Því ég byrjaði í þeim aðstæðum og það gekk upp. Þá bara skrifaði ég bók og gerði jólaplötu og fann út hvað ég ætti að gera. Þannig að núna er ekki Covid og þá er þetta ekkert mál,“ sagði Lalli.
Lalli frumsýndi töfrasýninguna Magicshow í Tjarnarbíói í gær, sunnudag, en sýningin, sem er flutt án, orða hentar börnum frá 2-12 ára af öllum uppruna, en ekki þarf að kunna íslensku til að skilja sýninguna. Fjórar sýningar eru fram undan hjá Lalla, tvær í febrúar og tvær í mars.
Hægt er að lesa viðtalið við Lalla á vef mbl.is hér.