„Þessum degi mun ég aldrei gleyma,“ segir Kristján Gunnarsson sem veiktist illa af Covid-19 um daginn sem hann útskrifaðist af lungnadeild Landspítalans. Kristján sagði sögu sína í fréttaskýringaþættinum Kveik á RÚV í kvöld en hann varð 64 ára daginn sem hann útskrifaðist.
Það var um miðjan mars að fyrstu einkenni gerðu vart við sig hjá Kristjáni. Ekki var þó um dæmigerð einkenni að ræða til að byrja með heldur aðallega hiti og höfuðverkur. Hann ákvað þó að drífa sig til læknis eftir að hafa verið með 40 stiga hita í nokkra daga.
Til að taka af allan vafa um hvort um Covid-19 væri að ræða var tekið strokupróf en það reyndist neikvætt. Kristján hélt því heim á leið en samt sem áður lækkaði hitinn ekki. Hann fór því aftur til læknis og aftur var tekin prufa en í annað skiptið reyndist hún neikvæð fyrir Covid-19.
Í þættinum í kvöld kemur fram að lungnaberkjupróf hefði loks leitt í ljós að Kristján væri með Covid-19 eftir að tvö strokupróf úr nefi og munni reyndust neikvæð. Honum var hraðað inn á Hringbraut þar sem hann var svæfður og settur í öndunarvél.
Í þættinum rifjaði Kristján upp veruna á gjörgæsludeild Landspítalans og segist hann til dæmis hafa fengið slæmar martraðir og liðið eins og sótt væri að honum úr öllum áttum.
Sem betur fer braggaðist Kristján og var hann fluttur í einangrun á lungnadeild þegar hann vaknaði. Það hafi ekki verið gott en þó verið betra en að vera á öðrum, verri stað. „Það var alltaf það sem mér var sagt: Þú varst að deyja, pabbi. Þeir rétt björguðu þér.“
Kristján hefur verið á Reykjalundi síðan hann útskrifaðist, en sex sjúklingar eru komnir þangað til meðferðar eftir að hafa útskrifast af Landspítalanum. Eins og kom fram hér fremst gleymir Kristján ekki deginum þegar hann útskrifaðist en í þættinum var til að mynda spiluð upptaka af því þegar starfsfólk lungnadeildarinnar söng fyrir hann afmælissönginn og færði honum köku í tilefni dagsins.
„Ég er kannski mest þakklátur yfir því að geta haldið upp á hann (afmælisdaginn) því það var alveg óvíst. Svo var þetta yndislega fólk á lungnadeildinni, þegar þær voru að kveðja mig, þá sungu þær fyrir mig afmælissönginn og komu með tertu. Það er þetta sem ég er að tala um með þetta auka viðmót sem kannski fleytir mönnum áfram. Ég komst í gegnum þetta af því að heilbrigðiskerfið er svo gott þegar kemur að því hvernig starfsfólk gefur þetta aukadæmi inn. Það er ekkert sjálfgefið.“
Hér má nálgast þátt Kveiks.
Mynd: Skjáskot úr umfjöllun Kveiks.