Krabbameinssjúkir og langveikir verst úti

Allt frá árinu 2003 hefur hlutfall heilbrigðisþjónustu af vergri landsframleiðslu (VLF) farið lækkandi. Árið 2003 var það 10,1% en hefur hægt og bítandi lækkað niður í 8,8% árið 2014. Þetta kemur fram í grein sem Ólafur Ólafsson, fyrrverandi landlæknir og Gunnar Alexander Ólafsson birta á visir.is.
 
Þeir mótmæla því að fjármögnun heilbrigðisþjónustunnar hafi hækkað líkt og oddvitar ríkisstjórnarinnar og heilbrigðisráðherra Kristján Þór Júlíusson halda stöðugt fram. Þvert á móti sýni upplýsingar frá Landlækni og Kára Stefánssyni sem séu réttar að Ísland leggur ekki jafnmikið til heilbrigðismála sem hlutfall af VLF eins og hin norrænu ríkin.
 

Gæði og árangur heilbrigðisþjónustu á Íslandi virðist vera góð í alþjóðlegum samanburði þangað til árin 2009–2010. Eftir 2009 höfum við ekki náð að halda þeim gæðum og árangri í heilbrigðisþjónustu sem við teljum viðunandi og vera í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu.\"

Afleiðingar þessa eru uggvænlega og til mikils kostnaðarauka fyrir þá sem síst skyldi.

\"Vegna lélegrar endurnýjunar á nauðsynlegum tækjum og búnaði ásamt skorti á læknum, hjúkrunarfræðingum og tæknifólki hafa biðlistar lengst. Nú um mundir hafa skapast óþolandi biðlistar jafnvel eftir einföldum augnaðgerðum, meðferð á hjartaóreglu, hjartaþræðingum og bráðnauðsynlegum krabbameinsrannsóknum og eftirliti. Að auki hefur skapast ógnvekjandi kostnaður hjá mörgum sjúklingum vegna notkunar á heilbrigðisþjónustu vegna sinnuleysis heilbrigðisyfirvalda. Á þetta sérstaklega við fólk sem glímir við krabbamein og langveikt fólk. Kannanir hafa sýnt að fleiri og fleiri hafa frestað ferð til læknis vegna kostnaðar. Þar fyrir utan hefur dregið stórlega úr innleiðingu á nýjum lyfjum. Ef þessi þróun heldur áfram og ekki meira fjármagni varið í heilbrigðisþjónustuna, bendir flest til þess að gæði og árangur hennar muni versna á næstu árum.\"

Verkefnið sé nú að forgangsraða betur og leggja meira fé í heilbrigðisþjónustuna.  \"Ef meira fé fæst í heilbrigðismál á að nota það til að auka gæði og árangur heilbrigðisþjónustunnar og draga úr kostnaðarþátttöku almennings vegna heilbrigðisþjónustu. Við teljum það verðugt markmið að taka áskorun Kára Stefánssonar og stefna að því að 11% af vergri landsframleiðslu fari í heilbrigðismál, til að viðhalda þeim góðu gæðum og árangri sem við þegar höfðum náð,\" segja greinarhöfundar en skrif þeirra á visir.is má lesa í heild hér.