Karl Ágúst Úlfsson, einn ástsælasti leikari, leikstjóri og rithöfundur þjóðarinnar, greindist með heilaæxli fyrir þremur mánuðum. Karl greindi félögum sínum í Rithöfundasambandinu (RSÍ) frá þessu í morgun. Þetta kemur fram í frétt Fréttablaðsins.
Æxlið, sem reyndist góðkynja, var fjarlægt með skurðaðgerð en vegna veikinda sinna hefur Karl ákveðið að draga sig í hlé sem formaður sambandsins. Karl Ágúst birti tilkynningu þess efnis í lokuðum hópi félaga í Rithöfundasambandinu og staðfesti hann þessi tíðindi í samtali viðFréttablaðið.
Karl var endurkjörinn formaður til tveggja ára á aðalfundi sambandsins á síðasta ári.
„Í ljósi þess reiknaði ég með að gegna því starfi í sex ár samanlagt, eða frá 2018 til 2024. En ekki er framtíð manns alltaf fyrirsjáanleg og nú hefur komið í ljós að svo muni ekki verða. Það eru heilsufarsleg skakkaföll sem valda því,“ sagði Karl Ágúst meðal annars.
Karl segir að aðgerðin þar sem æxlið var fjarlægt hafi heppnast vel en þrátt fyrir það eigi hann langt í land með að stunda þau störf sem hann hafði tekið að sér.
„Eitt af þeim er formennska RSÍ. Áhrif skurðaðgerðar á heila manns geta verið mikil og erfið viðureignar. Aðgerðin dró stórlega úr líkamlegri getu minni, en ég hef náð að endurheimta hluta hennar með sjúkraþjálfun. Það er þó einkum og sér í lagi breytt starfsemi heilans sem háir mér og á að öllum líkindum eftir að skila sér til baka á löngu tímabili,“ segir hann í færslu sinni.
Hann bætir við að þetta hafi kveikt hjá honum alvarlegan efa að hann búi nú um allnokkurt skeið yfir andlegri og vitsmunalegri getu sem honum þykir nauðsynleg til að sinna formennsku sambandsins jafn vel og æskilegt er.
„Af þeirri ástæðu óska ég eftir að stíga út úr starfi formanns RSÍ. Ég mun sem sagt ekki gegna embættinu fram að aðalfundi ársins 2024.“
Margrét Tryggvadóttir, varaformaður sambandsins, mun gegna skyldum formanns þangað til annað verður ákveðið, að sögn Karls.
„Mér þykir afar vænt um Rithöfundasamband Íslands og hef tekið að mér margvísleg verkefni fyrir það á þeim fjörutíu árum sem liðin eru frá því ég gerðist þar félagi. Ég hef haft mikla ánægju af starfi sem formaður og þykir því býsna sárt að kveðja það fyrr en ég ætlaði. Ég tel það þó rétta ákvörðun og óska eftir að einhver taki við keflinu sem ræður við það betur en ég um þessar mundir. Loks vil ég þakka það traust sem mér hefur verið sýnt og gott samstarf við annað stjórnarfólk, samninganefndir og alla þá sem tekið hafa að sér að þjóna hagsmunum rithöfunda á öllum sviðum,“ segir Karl og sendir að lokum bestu kveðjur til félaga sinna í sambandinu.