Karamelludraumur sem gleður auga og munn

Það er fátt betra en púðursykurs pavlova og rjómi með karamellufyllingu. Margir elska marengs og pavlovur í öllum stærðum og gerðum og hægt er að leika sér með fyllingar eftir smekk hvers og eins og toppa með sínum uppáhalds. Hér kemur ein undurljúffeng sem gleður bæði auga og munn úr smiðju Berglindar Hreiðars köku- og matarbloggara á Gotterí og gersemar.

„Ég er mikið fyrir púðursykursmarengs með rjóma og mismunandi fyllingum. Hér er ég búin að þeyta rjóma, saxa Dumle súkkulaðistykki með mjúkri karamellu og setja ofan á marengsinn og síðan hella smá súkkulaðisósu yfir allt í lokin, nammi gott.“ Þessar verðið þið að prófa.

Draumur karamellu Dumle-pavlovur-10-683x1024.jpg

Karamellurdraumur Berglindar er freistandi./Ljósmyndir Berglind Hreiðars.

Karamelludraumur

16-18 stykki eftir stærð

Marengs

  • 4 eggjahvítur
  • 270 g púðursykur
  1. Hitið ofninn í 110°C.
  2. Þeytið eggjahvíturnar þar til þær fara aðeins að freyða.
  3. Bætið þá sykrinum saman við í nokkrum skömmtum og skafið niður á milli.
  4. Þegar marengsinn er stífþeyttur má færa hann yfir í sprautupoka/zip-lock poka og sprauta litlar bústnar marengskökur á bökunarplötu íklædda bökunarpappír.
  5. Takið því næst skeið og mokið aðeins upp úr miðjunni á hverri köku með bakhliðinni á skeiðinni til að búa til pláss fyrir rjómann.
  6. Bakið í 70 mínútur og leyfið að kólna inn í ofninum í að minnsta kosti klukkustund áður en þið takið út.

Fylling

  • 600 ml rjómi
  • 150 g Dumle súkkulaðistykki ( 1 ½ 100 g plata)
  1. Þeytið rjómann og saxið súkkulaðið niður.
  2. Vefjið súkkulaðinu varlega saman við þeyttan rjómann með sleif og setjið síðan rjómablöndu á hverja marengsköku.

Skraut

  • 50 g dökkt súkkulaði
  • 50 ml rjómi
  • 100 g saxað Dumle súkkulaðistykki
  • Fersk blóm (má sleppa)
  1. Saxið súkkulaðið smátt og hitið rjómann að suðu.
  2. Hellið rjómanum yfir súkkulaðið og pískið saman þar til slétt súkkulaðisósa myndast.
  3. Dreifið súkkulaðisósu yfir rjómann og að lokum söxuðu Dumle súkkulaði og blómum sé þess óskað.

Berið fram á fallegum kökudisk eftir ykkar smekk.

Draumur karamellur 2.jpg