Nokkur atriði ber að hafa í huga þegar þeyta á egg. Egg þeytast best ef þau eru við stofuhita. Takið því eggin úr ísskáp 15 mínútum fyrir þeytingu og leggið í volgt vatn. Þá er eggið tilbúið fyrir þeytingu en þegar á að skilja eggið og þeyta eggjahvítur vöndum við okkur enn frekar.
Þegar þeyta á eggjahvítur, til dæmis í marengs, er þetta rétta leiðin:
- Hafið skál og spaða alveg hrein og þurr, arða af eggjarauðu eða smá vatnsdropi kemur í veg fyrir að hvíturnar þeytist.
- Þeytið fyrst hvíturnar, bætið svo sykri hægt út í.
- Bætið sykri í eggjahvíturnar þegar hægt er í sæta í sæta rétti. Við það verða hvíturnar meðfærilegri.
- Þeytið eggjahvítur rétt fyrir notkun, þær missa loft við geymslu.
Þegar egg er aðskilið þarf að vanda til verka. Sláið egginu við skarpabrún. Opnið eggið og veltið rauðunni varlega á milli skurnarhelmingana þannig að hvítan renni niður í skál. Einnig er hægt að fjárfesta í eldhúsáhaldi sem skilur eggið að og frábært áhald að eiga í eldhúsinu.