Jakob fíflaðist í Heimi og Gulla eftir viðtalið við Pál: „Hvað voru þið að spá?“

„Þið eruð nú meiri kallarnir. Þið eruð búnir að gera allt brjálað með þessu viðtali við Pál Vilhjálmsson,“ sagði Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður Vísis, við þá Heimi Karlsson og Gulla Helga í Bítínu á Bylgjunni í morgun.

Líkt og fjallað var um í gær mætti Páll í þáttinn til þeirra og fór yfir samsæriskenningu sína um að umfjöllun Kjarnans og Stundarinnar um skæruliðadeild Samherja síðasta vor. Búið er að kalla fjóra blaðamenn í yfirheyrslu vegna málsins. Í grófum dráttum telur Páll að rannsókn lögreglunnar á Akureyri snúi að eitrun á Páli Steingrímssyni skipstjóra Samherja og meðlims skæruliðadeildarinnar til þess að stela símanum hans til að afrita gögn þaðan. Páll, sem hefur verið kallaður leigupenni Samherja gefur ekkert upp um hvaðan hann fær sínar upplýsingar, segir að aðilar innan Ríkisútvarpsins hafi skipulagt þjófnaðinn á síma skipstjórans. Heimir og Gulli reyndu sitt besta að spyrja Pál gagnrýnna spurninga og bentu á að frásögn hans væri nú í raun lygileg og reyfarakennd.Skal tekið fram að Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, hefur alfarið hafnað kenningum Páls.

Jakob Bjarnar lét þá alveg heyra það í morgun:

„Hvað voru þið að spá? Ef ég væri kurteis maður þá myndi ég segja að þar færi maður sem er alveg Gaggallagú og þið sátuð hérna grandvaralausir eins og þarna væri vammlaus maður, marktækur náungi.“

Heimir svaraði að Páll héldi þessu nú bara fram og Jakob tók fram að hann væri bara að fíflast í þeim:

„Það voru margir að hneykslast á þessu viðtali, það þarf að taka utan um það, þennan misskilning um blaðamenn að það er ekki þar með sagt að þegar við tökum viðtöl við fólk að við séum þá að lýsa því yfir að við séum sammála þeim í einu og öllu eða veita þeim viðurkenningu, sem mætti kalla lögmæti. Það er mjög mikilvægt að fólk ruglist ekki á viðmælanda og blaðamanni,“ sagði Jakob. Það væri viss tegund af mannfyrirlitningu að vera á móti því að ræða við einstaka einstaklinga.

Jakob Bjarnar ræddi svo um Pál sjálfan og rifjar upp þegar hann gerði allt brjálað með ummælum sínum um fréttamenn RÚV, síðast um geðheilbrigði Helga Seljan sem varð til þess að Páll var tekinn á teppið í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ þar sem hann starfar. Svo fór hann í kenninguna:

„Ég kútveltist alveg úr hlátri. Hann telur að eitrað hafi verið fyrir nafna sínum Steingrímssyni. Ríkisútvarpið tengist því einhvern veginn,“ sagði hann. „Og einhver á RÚV, Þóra Arnórsdóttir væntanlega sem hefur verið kölluð til yfirheyrslu hjá Páley lögreglustjóra, hún hafi fengið einhvern til að stela síma hans því hún hafi vitað að þar væru gögn um skæruliðadeildina svokölluðu. Fær svo einhvern tæknimann til að afrita símann og laumar honum aftur á sjúkrabeð þar sem Páll liggur í óráði. Síðan sendir hún gögnin á Þórð Snæ.“

Gulli stoppaði hann af og sagði að þetta væri ekki rétt endursögn á máli Páls. Jakob sagði að þetta væri rétt í grófum dráttum. „Hann vill meina það að Þóra stýri á einhvern hátt fréttaflutningi Þórðar Snæs og Aðalsteins Kjartanssonar, báðir verðlaunaðir blaðamenn og vandir að sinni virðingu,“ sagði hann. „Svo hangir þetta einhvern veginn saman við það að fólk hafi hætt á RÚV. Ég meina… strákar… kommon.“