Sema Erla Serdar, formaður hjálparsamtakanna Solaris, segir nýnasistasamtökin Norðurvígi og áróður þeirra stórhættuleg íslensku samfélagi. Þetta kemur fram í viðtali við Semu á vef Fréttablaðsins.
Áróður samtakanna var í dag hengdur upp á stoppistöð í strætóskýli á Gullinbrú. Það var tekið niður síðar af Guðmundi Heiðari Helgasyni, upplýsingafulltrúa Strætó. Hann hvetur aðra til þess að taka þetta niður, sjái þeir slíka miða en varar við rakvélablöðum sem gæti verið að finna fyrir aftan miðana.
Fréttablaðið hefur eftir Semu að um sé að ræða sorglega þróun. Áróðurinn sé í takti við þróun umræðunnar um útlendinga hérlendis þar sem andúð hafi í síauknu mæli verið normalíserað í umræðunni, meðal annars af stjórnmálafólki og flokkum.
„Þetta hefur verið að færast í aukana síðastliðnu ár og hefur verið normalíserað. Sem er ótrúlega sorglegt því íslenskt samfélag er fjölmenningarsamfélag og því verður ekki haggað,“ segir Sema.
Hún segir Norðurvígi vera stórhættuleg samtök. „Þau eru hættuleg einstaklingum, þau eru hættuleg minnihlutahópum í samfélaginu okkar og samfélaginu öllu í heild sinni. Samtök eins og þessi á norðurlöndunum eru þekkt bæði fyrir hryðjuverk, ofbeldi og morð. Þau hafa meðal annars verið bönnuð í Finnlandi.“
Vá hvað þetta er sjúkt og ógeðslegt pic.twitter.com/GaGuZzD2Mb
— Guðmundur Jörundsson (@gudmundur_jor) October 18, 2020